Blanda - 01.01.1932, Blaðsíða 8
2
ar. Hún býr ógipt í Efri Rauðsdal 1703. Bræður Sigurðar
voru nafnkenndir menn: Magnús sýslumaður í Miðhlíð
(t 1675), Eggert lögréttumaður á Ökrum (f 1656), Gisli
lögréttumaður í Reykjarfirði (f 1679) og Guðmundur í
Hvammi á Barðaströnd (f 1657). Ásgeir Sigurðsson (höf.
ferðasögunnar) hefur 18 vetra gamall siglt til Hafnar
(1668) og varð þar fullnuma í trésmíði 1673. Lýsir hann
nokkuð námi sínu í þeirri iðn, og ekki með björtum lit-
um. í þann tíð og lengi siðan var það venja, að fullnuma
iðnaðarmenn frá Norðurlöndum fóru að loknu námi á eins-
konar flakk suður um lönd, borg úr borg, dvöldu sums-
staðar nokkra hríð og unnu sér fvrir farareyri til næsta
áfanga, og svo koll af kolli. Stóð þetta ferðalag yfir nokk-
ur ár hjá þeim, sem lengst ;og víðast fóru, unz þeir hurfu
heim aptur, og var það kallað „að valsa“ á þessara pilta
máli, og þaðan mun jafnvel orðið „valsa“ eða „vallsa"1)
komið inn i íslenzku (t. d. hvað er hann að valsa? þ. e.
ferðast eða flækjast). Voru farandsveinar þessir stundum
einir sins liðs, stundum tveir saman og stundum fleiri, en
sjaldan i stórum hóp, því að það hefur þótt örðugra til að
fá hlaupavinnu. í slíka flakkferð fór Ásgeir, með öðrum
pilti frá Höfn vorið 1673, og fóru þá fyrst til Póllands,
Hollands og Þýzkalands, en í marz 1675 varð Ásgeir við-
skila við förunaut sinn, og ferðaðist úr því einn lengra suð-
ur á bóginn, og komst til Austurrikis, Ungverj alands og
Sviss, og svo aptur til Þýzkalands. Lenti i fangelsi í Dresden
og fleiri æfintýrum, sem hann lýsir. Virðist hann hafa stað-
næmzt i Hamborg haustið 1675 og verið þar til vorsins 1677,
að hann hélt til íslands, eptir 9 ára dvöl erlendis. Svo hefur
hann kvænzt um 1680, þrítugur að aldri, og átti Helgu dóttur
Árna Einarssonar fyrrum prests í Skarðsþingum, er misst
hafði prestsskap og lengi búið embættislaus á Ósi í Stein-
grimsfirði (t 1686). Var hann son Einars prófasts á Stað
í Steingrimsfirði Sigurðssonar prófasts á Breiðabólsstað
Einarssonar prófasts í Heydölum Sigurðssonar. Bjuggu þau
1) Skylt þessu er forníslenzka orðið „vallari" = göngu-
maður (farandmaður, pílagrimur), sbr. á þýzku Wallfahrt.
eiginlega = gönguför.
á