Blanda - 01.01.1932, Blaðsíða 227
221
um fjölskyldum á hentugum stöðum í landinu", þótt
hann segist gera það bæði eptir munnlegum sam-
ræðum við Poul Egede, er hann (B. P.) var í Höfn,
og eptir nýfengnu bréfi frá Agli Þórhallasyni, trú-
boða. Þessi skýrsla landlæknis er að ýmsu leyti ept-
irtektaverð, en því miður er hér ekki rúm til að
taka verulegt ágrip af henni.1) Minnist hann fyrst
á, hversu tilraunir Friðriks konungs 4. (1729) hafi
farið út um þúfur, en það sem ekki tókst þá, gæti
tekizt nú, og þótt Island væri ekki fólksmargt, þá
gerði hvorki til né frá, þótt fáeinar fjölskyldur flytt-
ust til Grænlands, en það verði að vera duglegt
fólk, einkum til allsskonar veiðiskapar, alsstaðar af
landinu, svo að það væri sem samsafn eða sýnis-
horn af atvinnumöguleikum allrar íslenzku þjóðar-
innar, að áríðandi sé, að hentugt land til akuryrkju
væri tekið til byggingar þar vestra, hæfilega langt
frá nýlendunum, og heppilegast, að 6 fjölskyldum
væri skipt að eins i tvo staði o. s. frv. Auk 1—2
presta þyrfti að vera einn umsjónarmaður eÖa for-
ráðamaður til að leiðbeina landnemum, alveg eins
°g í kröfu íslendinga 1729, en landlæknir kveðst
ekki Jiurfa að skýra Jiessar tillögur sínar nánar, með
því að séra Jón Bjarnason á Ballará muni senda
álit sitt ])á með kaupskipunum, en hann hafi af
sérstakri hvöt lagt mörg ár afarmikla stund á allt,
er Grænland snerti að fornu og nýju, og þótt hann
sé nokkuð fullorðinn að aldri, þá muni hann með
sæmilegum skilmálum fást til að flytja til Græn-
lands, hann sé vel lærður og ráðsettur maður, og
manna bezt að sér, hér i landi, í allri matjurtarækt
°g því að vissu leyti manna hentugastur og nyt-
samlegastur fyrir Jietta fyrirtæki, en verði alvarlega
1) Er í Þjskjs. meSal skjalanna frá Wandel.