Blanda - 01.01.1932, Blaðsíða 9
3
Ásgeir og Helga lengi á Ósi, og þar eru þau 1703, hanntalinn
53 ára og hreppstjóri, en hún 44 ára (f. C: 1659), en dætur
þeirra Hallbjörg 21 árs og Steinunn 17 ára. Hvenær Ás-
geir hafi andazt er ókunnugt, en á lífi var hann 1712. Hann
mun hafa verið hæfileikamaður, og víðförlastur hefur hann
eflaust verið allra islenzkra sveitabænda á 17. öld, að Jóni
Indíafara undanskildum, og kunnað því frá mörgu að
segja, eins og þessi ferðasaga hans ber með sér. Frá hon-
um eru komnar fjölmennar ættir. Hallbjörg, eldri dóttir
hans, átti Jón í Reykjarfirði í Vatnsfjarðarsveit, merkan
mann, son Hannesar stúdents Gunnlaugssonar bartskera í
Reykjarfirði (f 1686), og áttu þau mörg börn. Son þeirra
var Ari í Reykjarfirði faðir Guðmundar á Auðkúlu í Arn-
arfirði föður Guðmundar selaskutlara í Vigur, föður Krist-
jáns á Borg i Arnarfirði (f 1888) föður Guðmundar skip-
stjóra i Rvík og Kristjáns skipstjóra í Stapadal. En dóttir
Guðmundar Arasonar var Guðrún, er átti séra Jón Ásgeirs-
son á Rafnseyri (f 1886), og er frá þeitn komið margt
manna vestra og flest myndarfólk. Dóttir Jóns Hannes-
sonar og Hallbjargar var Anna móðir Ásgeirs Þorsteins-
sonar á Rauðamýri, föður Ásgeirs s. st., föður Ásgeirs
eldra kaupmanns á ísafirði og Margrétar, móður Jóns
Hjaltalíns skólastjóra og Sigurðar, föður Ásgeirs konsúls
í Rvik, sem er því 7. maður frá Ásgeiri á Ósi, alnafna sín-
um, og auðvitað sama nafnið. Hallbjörg Ásgeirsdóttir hef-
ur þvi orðið mjög kynsæl. (Sjá frekar um afkomendur Jóns
og Hallbjargar: Sýslum.æf. III, 450). En frá Steinunni,
yngri dóttur Ásgeirs, verður litt rakið. Hún átti Pál Þóris-
son frá Neðri Hvestu í Arnarfirði Höskuldssonar, og voru
synir þeirra Þorgrímur og Þórir auðgi í Laugardal, faðir
Þórðar beykis á Bíldudal, 'föður Þorvalds í Köldukinn á
Fellsströnd (f 1839).
Þessi ferðasaga Ásgeirs snikkara á Ósi er furðu liðlega
rituð og skemmtiieg, og mundu margir óska, að höfundur-
inn hefði verið nokkru fjölorðari um það, sem á daga hans
dreif þessi 9 ár, er hann var utanlands. Lýsingar hans eru
optast glöggar og greinagóðar það sem þær ná, t. d. lýs-
ingarnar á tveimur hættulegum sjóferðum hans (frá Is-
1*