Blanda - 01.01.1932, Page 102
96
upp hríðina til landsins, en kólgubakki hélzt til hafs-
ins. Vonin hafði teki'ð talsvert af hákarli og seldu
skipverjar hann á SeyðisfirÖi við góðu verði og bættu
þar við sig nokkru af mötu, en einnig talsverðu af
drykkjarföngum, því bæði skipstjóra og sumum há-
setum þótti gott í staupinu. Var það ekkert óvana-
legt um hákarlamenn í þá daga. Tók skipstjóri með-
al annars 12 potta af rornrni og margir af skipverj-
um 1 og allt upp i 4 potta af rommi eða brenni-
vini. Gerðist nú töluvert svall um borð, þvi skipstjóri
var veitull og höfðingi við menn sina. Þegar skip-
stjóri var orðinn drukkinn, héldu honum engin bönd
nerna að leggja út. Stýrimaður réði frá því, en há-
setar gáfu litið að. Var þá siglt út seinni part dags
og átti að freista að komast norður um Langanes,
en strax og kom út úr firðinum, gætti straums svo
mikið, að skipið bar meira suður með landinu, en
f'ram, þótt freistað væri að stefna norður með, enda
var vindstaðan norðlæg og óhagstæð. Brátt tók að
auka hríðina og herti veðrið, og kl. 10 um kvöldið.
sem var síðasta vetrarkvöld, var kotnið ofsarok á
norðan og stórhrið, svo ekkert sá frá borði, enda
niðdimm nótt. Stórsjór var lika afskaplegur. Skip-
stjóri var mjög drukkinn og ófær til stjórnar í því
ásigkomulagi. Tók þá Gísli stýrimaður hann, og kom
honum undir þiljur og lokaði, því ekki var hent að
hafa opið fyrir ágjöf. Tók nú Gísli stjórn skipsins
og var nú hleypt á fokkunni tvírifaðri einni saman,
til kl. 4 um morguninn, og gekk skipið 8 milur á
vöku. Þá voru sett upp fleiri segl, stumprifuð og
lagt við í stefnu til lands, og skyldi nú freistað að
fá landkenningu. Var siglt upp í þrjá tíma, en þá
herti veðrið á ný og hríðina, og varð við ekkert ráð-
ið. Var þá það tekið ráðs, að leggja fram aptur álíka
langt, til að forðast landið, og leggja svo skipið til.