Blanda - 01.01.1932, Blaðsíða 117
III
°g málskostna'Öur. Þó varð ágreiningur um dóminn, með
fcví að Jón Pétursson yfirdómari lagði til, að hegning nafna
sms yrði 15 vandarhögg. Dómur í máli Runólfs Jónssonar
°g barna hans var kveðinn upp í yfirrétti 1. sept. 1862.
Var hegning sú, er þeim Runólfi, Ingvari og Ásdísi hafði
verið dæmd í héraði, lækkuð í 20 vandarhögg, sem jafn-
gdti 6X5 daga fangelsi við vatn og brauð. En um hegn-
mgu Jóns, málskostnað og málflutningslaun í héraði, var
dómi imdirréttar ekki breytt. Og í málflutningslaun við yfir-
réttinn var þeim gert að greiða 16 rd.
V. G. telur Ásdísi Runólfsdóttur 34 ára gamla, er hún
varð riðin við mál þetta, og hann gizkar á, að hún hafi
dáið á Landinu. En hvorugt er rétt. Ásdís var 33 ára, og
hún var ekki fullra 33 ára, þá er þeir viðburðir gerðust,
sem urðu orsök til málsins. Hún andaðist í Kirkjubæ á
Rangárvöllum 29. júni 1899, sjötug að aldri (f. I. okt.
1828). Banamein hennar var lungnabólga.
V. G. segir, að Ingvar í Hól hafi átt nokkur börn og
nefnir 4 þeirra, og þar á meðal Sigríði. Þetta er ónákvæmt
°g rangt. Ingvar átti 4 börn, en ekkert þeirra hét Sigriður.
Jón Runólfsson dó ekki barnlaus. Hann átti einn son,
Runólf að nafni, og er hann enn á lífi.
Yfirleitt virðist mér greinin víða vera með því marki
brennd, — auk þess, sem er alveg rangt i henni, — að „dóm-
ar höfundar um menn og málefni, m&rgir, séu ósanngjarnir
°g beri vott um lítinn sögulegan skilning".
Ingibcrgur Runólfsson.
Svar.
Hr. Ingibergur Runólfsson hefir aukið hér við frásögn
wina af máli J. R., fyr i riti þessu, og leiðrétt fáein at-
riði lítilsháttar. Fyrir þetta tvennt er eg þakklátur.
Aíér var ekki kunnugt um yfirréttardóminn. En málum
þessum var lokið i héraði, á þann hátt, er eg lýsti. Og eigi
fann eg i dómabókinni nokkurt orð um framhald málanua.
Ásdis Runólfsdóttir var fædd i V. Tungu 1. olct. 1827.
Reiknaðist mér því, að hún yrði 34 ára á meðan hún var