Blanda - 01.01.1932, Blaðsíða 113
io7
'eru um staSinn, eptir því sem hægt er. — Þeir, sem hafa
fert í letur gamlar örnefna- og staðarsagnir, hafa unnið
mJög þarft verk, með að forða frá gleymsku gömlum minn-
'ingum, sem varpa bjarma til fornaldarinnar og hjálpar
manni til að ráða rúnir þær, sem skráðar eru með verk-
'um horfinna kynslóða. Þessar gömlu staðar- og örnefna-
sagnir hafa geymzt með þjóðinni mann fram af manni
°g hefur því opt viljað til, að sagan hefur breyzt í með-
ferðinni, en líklegt, að aðalkjarninn hafi optast, að
minnsta kosti, haldizt óbreyttur; mestar líkur eru á,
að slíkar sagnir geymist réttastar á þeim stöðvum, sem
þær eru upprunnar frá, og fólk það, sem kann sagnimar
'°g þekkir staðinn, sem þær eru tengdar við, skýrir að
óllum líkindum réttara frá, heldur en þeir, sem staðnum
eru ókunnugir.
I áðurnefndri grein M. J. eru örfá atriði, sem eg vildi
gera athugasemdir við. Er það aðallega viðvíkjandi lands-
lagslýsingu Margeirs, og breytir þvi litlu i aðalefni grein-
arinnar, en eg tel þó réttara að leiðrétta missagnir þær, sem
koma fram í grein hans. Á bls. 173 lýsir M. J. lands-
lagi í Vesturdal, og afréttinni kring um Klaustur. Þar
segir hann: „Vestan við Runukvisl eru kallaðar Lamba-
tungur, — að Lambá, lítilli ársprænu, sem fellur í Hofsá.
Hellishlíð kallast fellið vestan við Klausturrústirnar, og
jafnvel af sumum fyrr1 var Klaustur talið að standa fremst
í Lambatungum." Á þessu er helzt að slcilja, að Klaustur
standi framan við Lambatungur, en það er ekki rétt. Lands-
svseðið milli Lambár (að norðan) og Hraunþúfugilsár (að
sunnan), kallast Lambatungur. Hraunþúfugilsá rennur
austur í Jíofsá, rétt fyrir sunnan Klaustur; þá staðfest-
ist þvi það, sem almennt hefur verið sagt, að Klaustur
standi fremst í Lambatungum. Það er skakkt, að fellið fyr-
ir vestan (ofan) Klaustur heiti Hellishlíð.
Skammt fyrir vestan brúnina fyrir ofan Klaustur er
fell, sem Sandfell heitir, iog er það eina fellið á þessum
stöðvum. Hliðin, sem M. J. kallar Hellishlið, nær frá
Hólófernishöfða og út fyrir Runufoss, og er hún kölluð
Klausturhlíð.