Blanda - 01.01.1932, Blaðsíða 127
121
prestur i Bjarnanesi (t 1834)J). 2. Þórunn, hann-
yrðakonan mikla á Hamraendum, er átti Benedikt
prest Hannesson. Unni Ólafur henni mjög og kom
henni í fóstur; er sagt hún gyldi þess mjög hjá móÖ-
ur sinni. 3. Teitur stúdent, er flæktist utanlands, og
manriátSist ekki, dó a'Ö þ'ktum í Hitardal* 2).
Það var nokkru síðar, er Davið Scheving hafði
fengið sýsluna, að Ólafur reið að Vatneyri og Hall-
dóra kona hans með .honum. Bjuggu þar þá Einar
Bjarnason og Kristin kona hans Þorvarðsdóttir.
Ólafur var þá alldrukkinn, svo sagt er, hann létist
þar af ofdrykkju, en því bæta Barðstrendingar við,
að boðið væri honum þar í skemmu og borin svið til
niatar, fengi hann tekið tvo bita, en sá þriðji stæði í
honum3). Hljóp Kristín húsfreyja þá inn eptir
nijolkurkönnu, og ætlaði að bera honum, en þá væri
hann beint í andláti, er hún kæmi aptur. Halldóru
honu hans var þá til sagt; hafði hún farið fram i
Vatneyrarkaupstað. Lét hún sér þá svo við bregða,
að hún afklæddi sig öllu skarti sinu, en sagt var, að
onginn sæi hana tárast, og að brátt mundi hún hress
verða. ólafur sýslumaður dó árið 17544). Hann átti
launson þann áður hann kvongaðist, er Sigurður hét,
1) Hann átti fjölda barna, og er frá honum fjölmer.n
ætt i Skaptafellssýslu og víðar. Einn son hans var séra
Bergur á Hofi í Alptafirði, faðir séra Jóns s. st., föður
séra Bergs í Vallanesi og séra Brynjólfs í Vestmannaeyjum.
2) 1821 hjá séra Birni Benediktssyni, systursyni sinum.
Enn var son Ólafs sýslumanns og Halldóru 4. Kort, er
drukknaði í Haukadalsá 1766, er hann fór úr skóla, ný-
útskrifaður.
3) Sbr. ummæli Jóns tisa við hýðinguna.
4) Dánardagur hans 20. sept. Var grafinn í Haga 27.
s- m. Æfiminning hans og líkræða, eptir séra Sigurð á
Brjánslæk, mjög mærðarmikil, er í Lbs. 1589 8vo.