Blanda - 01.01.1932, Blaðsíða 160
154
gátum borið, í geymslu hjá vini niínum Pétri frá
Fremri-Kotum,sem fyrr er nefndur; hann varþábók-
haldari hjá Thomsen. Lögðum við svo á stað og upp
hjá Skólavörðunni, stöldruðum þar við og virtum
hana fyrir okkur. Þá mælti Petur Grímsson úr Sæ-
mundarhlíð: „Sýnist ykkur ekki ráðlegt, félagar, að
bíða til morguns. Þá ætlar Oddur Gislason kandidat
að sigla suður til Njarðvíkur á stóru skipi. Hefir
hann gengið til spás við mann þann, er Árni heitir,
hann er málhaltur og kallar sig Aa1). Hann er svo
veðurspár, þá hann er að spurður, ef hann bendir í
loptið og segir „sigla, sigla,“ þá verður vel fært, en
ef hann bendir niður og segir „nei, nei,“ þá róa eng-
ir, og þetta hefur ekki brugðizt.“ Á þetta féllumst
við allir og gengum svo ofan að húsi Odds kandídats.
Hann sá okkur gegnum glugga og kom út; þótti mér
hann fríður, snarlegur og drengilegur á velli. Við
kusum Odd félaga minn að tala við hann. Oddur
spurði, hvort hann ætlaði á morgun til Njarðvíkur.
Hinn kvað já, efalaust. Bar þá Oddur upp erindið
fyrir okkur alla. Tók hinn því vel, ef við vildum
bera farangur hans til skips á morgun, og játuðum
við því fúslega. Ritaði hann þá nöfn okkar á blað, og
kvaðst gera það, svo aðrir gætu ekki stolið sér fari
í skjóli okkar, sagði hann,að við yrðum að vera komn-
ir þar, þá staðarklukkan væri 6 að morgni; gaf hann
okkur öllum vín og sagði við Odd: „Vertu þá vel-
kominn, nafni minn, með alla drengi þína.“ Hann vís-
aði okkur á greiðasöluhús þar rétt hjá, réðu því tvær
i) Árni þessi var sonur Jóns ríka Árnasonar í Ofan-
leiti í Rvík, var holgóma og hálfbjáni talinn, og aldrei
fermdur: var ]>ó heppinn formaður á yngri árum, og afar-
veðurglöggur. Var lengi vinnumaður hjá Guðmundi Þórð-
arsyni bæjarfulltrúa á Hólnum og andaðist þar 9. júli 1887.
68 ára gamall (f. 1819 á Óttarsstöðum í Hraunum).