Blanda - 01.01.1932, Blaðsíða 105
99
lagzt þar fyrir hákarl. VarÖ þar strax vart, og all-
gott um hákarl, en mjög smár. Lágu þeir þar
12 stundir. Var þá komiÖ austanveður allhvasst, og
var nú leyst og siglt meÖ einrifuðum seglum undir
Látrabjarg og fyrir það, og svo áfram norður með
landinu. Veðrið gekk alltaf fyrir, svo það stóð heima,
að þeir náðu með harðheitum fyrir hvern flóa og
fjörð, og var síðast orðið vestanrok, þegar þeir
sigldu yfir fsafjarðardjúp og austur til Aðalvíkur.
Þar lá fyrir fjöldi skipa, og meðal þeirra hákarla-
skipið Siglnesingur frá Siglufirði. Var þar skipstjóri
Jón Jóhannesson, sem nú er á lífi á Siglufirði. Var
Siglnesingur búinn að gera einn „túr“ og leggja upp
/O tunnur, og kominn aptur vestur, og hafði þegar
fengið 60 tn. — Varð þar fagnaðarfundur, því Von-
in var þá af öllum talin af, því engar fregnir höíðu
af henni komið í mánuð. Var ein brennivínsflaska
eptir í skipinu, og var hún tæmd þar.
A Aðalvík lágu þeir tæpan sólarhring, og var þá
siglt út í vestanstormi, sem fór hægjandi, og 8 míl-
ur suður, suðvestur upp á Horn. Var þar íshroði tals-
verður en greiður og fjarlægðist. Þarna var svo leg-
Jð í 9 sólarhringa. Gekk veðrið strax til hægðar, og
var allan þann tima logn og bezta veður. Færðu þeir
sig tvisvar allan tímann, ofan á (til djúps) Siglnes-
ing, sem lá hjá þeim. Var alltaf ágætt um hákarl
og drógu menn ekki af sér, enda var í lok þessará
9 sólarhringa skipið fyllt af lifur, svo sem frekast
var hægt í það að koma, og það svo, að jafnvel
seglakassinn á þilfarinu og nokkur koffort var fyllt.
Nú var leyst, þótt enn væri nógur hákarl, þar sem
ekki var hægt að taka meira. Var svo siglt i hægu
austankuli inn og austur í Húnaflóann. Var is tals-
verður á flóanum, og komust þeir ekki gegnum hann
fyr en inn undir Skagaströnd, og þó ekki að fullu,
7*