Eimreiðin - 01.01.1937, Blaðsíða 112
EIMREIÐIH
98 HRIKALEG ÖRLÖG
vinur!« Röddin var stundum skræk, stundum dimm. Á eftir
hverju háðsyrði rak hann upp hlátur. Þessi vitíirringslæti
liöfðu þau áhrif á mig, að ég liægði á mér, lét liestinn fara
fót fyrir fót, leit hvorki til liægri né vinstri, eins og háðs-
yrði og hlátrar gamla mannsins hefði enn minni þýðingu
fyrir mig en venjulegt hvolpagelt. Eg reið ætíð fram hjá með
fyrirlitningarsvip og keikur í hnakknum.
Eg hef sjálfsagt verið ákaflega virðulegur ásýndum. En ég
hefði gert réttara, ef ég hefði lilið betur í kring um mig. Á
styrjaldartímum má hermaðurinn aldrei gleyma skyldum sín-
um, og sízt í borgarastyrjöld, þar sem óvinirnir eru ekki að-
eins utan dyra, heldur og í hverjum kyma innan húss. Á
slíkum tímum deyíist drenglundin hjá mörgum manninuin
og víkur með öllu fyrir ofsahita hatursins, og fyrir liinum
sama ofsahita hverfur jafnvel mörgum af kvenþjóðinni allur
ólti og alt veiklyndi. En þegar hið veikara kynið hefur varpað
á bug ótta og allri hlygðan, verður það, vegna skjótræðis síns
í hugsun og vægðarleysis, hættulegra en karlmennirnir, hve
vel sem þeir eru að vopnum búnir.
Hér brýndi hershöfðinginn raustina og strauk tvívegis sitt
hvíta skegg með sinni þéttu hönd. Svipurinn var virðulegur
og röddin róleg: »Si, senores! Konan er þess albúin að fórna
öllu. Karlmaðurinn kemst þar ekki eins langt. Hún er þess
albúin að hrapa svo djúpt niður í liyldýpi smánarinnar, að
karlmannseðli vort skelfist, ef hún sér með því málstaðnum
borgið. Nvi tala ég um konur, sem eru undantekning fra
reglunni, eins og þér skiljið . . .«
Hér var það, að einn af gestunum lét þá skoðun í ljós,
að liann hefði enn aldrei liitt þá lconu, sem ekki gæti, þegar
svo bæri undir og tilfinningarnar kæmust í æsingu, orðið
alger undantekning frá reglunni. »Þetta, að þær geta gengið
fram af oss karlmönnunum í óhemjuskap, er einmitt það,
sem gerir þær að liinum athyglisverðari og skemtilegri hluta
mannkynsins«, bætti liann við.
Hershöfðinginn kinkaði kolli, alvarlegur og kurteis, við
þessari alhugasemd: »Alveg rétt! Þegar svo ber undir. Þær
geta slundum óvænt valdið ótrúlegustu vandræðum. Hver