Uppeldi og menntun - 01.01.2000, Page 18
DANSMENNT í GRUNNSKÓLA
kennurum voru sett með námskrá. Það vaknar því sú spurning hvort nemendum sé
ljóst hvaða markmið kennurum eru sett og til hvers kennarinn ætlast af börnunum
sem eiga að meta hvort hann hefur náð markmiðum námskrár.
Norsk námskrá í skólaíþróttum á skyldunámsstigi frá 1996
í Noregi er dans hluti af námskrá í tveimur sjálfstæðum námsgreinum, tónlist og
íþróttum. Hér er stuðst við meginmarkmið eins og þau koma fram í Læreplanverket
for den 10-árige grunnskolen, en ekki sundurliðun þeirra til kennslu.
Dans innan tónlistar er skilgreindur sem „eðlilegur hluti tónlistarhugtaksins
og samskipta barna og unglinga. Dans gefur börnum og unglingum heilsteypta
mynd og skilning á námsgreininni tónlist" (bls. 238). I þremur meginmarkmiðum af
fimm er dans talinn leið að tilgreindum markmiðum tónlistar en þau eru:
1. Nemendur þrói hæfni til að tjá sig og túlka með hljóðfæraleik, söng og
dansi.
2. Nemendur skynji gleði við virka þátttöku í tengslum tónlistar og fé-
lagslegra þátta sem skapast með því að taka virkan þátt í söng, leik og
dansi.
3. Nemendur skynji og skilji að eigin söngur, dans og hljóðfæraleikur geti
verið einhvers virði og geti skapað undirstöðu skilnings og þolinmæði
(bls. 240).
Samkvæmt námskránni getur dans verið valgrein frá 8. bekk og fellur þá undir
kaflaheitið „Musisere og danse" (bls. 240-246). Sameiginlegt markmið í 1.-7. bekk
er að kenna dansa sem leið að markmiðum tónlistar. Að mestum hluta er um að
ræða norska söng- og þjóðdansa.
Dans innan íþrótta. í upptalningu á meginmarkmiðum íþrótta í grunnskóla er
dans nefndur og þar segir: „Nemendur skulu öðlast jákvæða reynslu og þekkingu á
ólíkum tegundum leikja, íþrótta, dansa, útilífs og annarrar líkamlegrar virkni sem
hluta af menningu og undirstöðu fyrir líkamlega virka lifnaðarhætti" (bls. 266).
Dans er hluti af námskrá í íþróttum frá 5. bekk eða um 10 ára aldur. A miðstigi
(5.-7. bekk) er dans flokkaður með keppnisíþróttum (idrett og dans) en í síðustu
bekkjum grunnskólans getur dans verið valgrein skóla eða nemenda, (sjá viðauka 2,
bls. 19).
Hlutfall dansins af íþróttum er óskilgreint. Námsmat er ekki sérstaklega nefnt
fyrir íþróttir.
íslensk námskrá í dansi á sviði listgreina frá 1999
í skýrslunni Markmið listkennslu í grunnskólum og framhaldsskólum frá 1997 er kafli
um dans og líkamstjáningu og er það í fyrsta sinn sem dans fær sérstakan kafla í mark-
miðum listgreina. Því ber vissulega að fagna. Tilgreind eru eftirfarandi markmið
fyrir nemendur grunnskóla undir fyrirsögninni Sköpun / túlkun / tjáning:
16