Uppeldi og menntun - 01.01.2000, Side 29

Uppeldi og menntun - 01.01.2000, Side 29
SIGRÍÐUR Þ. VALGEIRSDÓTTIR valgrein. Óljóst er hvaðan þessir tímar eiga að koma því lífsleikni fær einn tíma á viku frá 4. bekk en samkvæmt ritinu Enn betri skóli eru gefin a.m.k. fjórtán dæmi um námskeið sem skólastjórar hafa frjálsar hendur um að velja. Vel kemur til greina að skólar velji ekki dansmennt sem hluta af námi í lífsleikni og alger óvissa um hve mikill munur kann að verða á fjölda kennslustunda og á námsefni barna í skólum sem bjóða upp á dansmennt. Nefnd voru nokkur úrræði sem beita má tii að mæta þessum vanda að hluta með tengslum við aðrar námsgreinar grunnskólans. Hug- myndir að útfærslu á dansmennt í samræmi við ný grunnskólalög og markmið dansmennta sem hér voru kynnt benda til að tengja megi hana við nokkrar náms- greinar í grunnskóla en til þess þarf að ætla bekkjarkennurum tíma til að vinna að samþættingu. Hugleitt var hvernig haga megi menntun grunnskólakennara til undirbúnings nýju hlutverki. Lagt var til að boðið verði upp á raðnámskeið fyrir starfandi grunn- skólakennara þar sem eitt námskeið væri forsenda annars. Jafnframt yrði stofnað til valgreinar í dansmennt í almennu kennaranámi og í kjölfar þess framhaldsnáms fyrir dansmenntakennara. Viðfangsefni til náms í dansmennt ætti ekki að vera vandamál ef gengið er út frá því að grunnskólakennarar, sem lokið hafa námi/námskeiðum í dansmennt, annist yfirleitt dansmenntakennsluna fyrstu árin. Ljóst er að leggja þarf nokkra vinnu í að gera innlent efni aðgengilegt fyrir kennara grunnskólans með einfaldri framsetningu aðferða og efnis í dansmennt svo og dönsum, ljóðum og lögum. Bent var á mikilvægi þess að börn kynnist í verki eigin arfleifð á sviði dansins. Gefin voru dæmi um samstarf námsgreina og bent á að auk samræmingar námsefnis þyrfti að örva skapandi hugsun í tengslum við samþættingu greina. Bent var á að þannig mætti víkka sköpunarhæfileika barna með markvissu skipulagi á örvandi námsumhverfi. Jafnframt kallar samstarf greina á frjóa hugsun kennara sem leita leiða við að útfæra hliðstæð markmið samþættra greina. Að lokum var lögð áhersla á að gefa börnum heilsteypta undirstöðu og víða sýn á sérkenni hinna ýmsu danssviða, hlutverk þeirra í nútíma samfélagi og val- kosti á þessu sviði í efstu bekkjum skólans. Á síðustu árum grunnskólans má ætla að nemendum verði boðin valgrein í dansi sem einkum er hugsuð fyrir þá sem hyggja á framhaldsnám í dansi á sérstöku sviði. Æskilegt er að geta jafnframt boðið nemendum sem kjósa aðra valgrein upp á stutt námskeið ef þeir óska að kynnast nánar einhverjum sviðum dansins sér til ánægju og tómstundagamans. Fyrir þá sem stefna að framhaldsnámi í dansi þarf að skipuleggja tengsl við æfingaskóla eða aðra aðstöðu fyrir verklega þjálfun. Gildi lista í menntun barna virðist hafa verið vanmetið í samanburði við bók- legt nám. Ken Robinson, prófessor í listmennt, ritar grein í dagblaðið Times (6. febrúar, 1998 bls. 49) um störf breskrar ráðgjafarnefndar sem falið var að fjalla um menntun til eflingar skapandi hugsun og menningu (Creative and Cultural Edu- cation). I nefndina voru skipaðir sérfræðingar í vísindum, viðskiptum, listum og menntun. Samkvæmt höfundi eru allir nefndarmenn þekktir fyrir að vera skapandi á sínu sviði. Robinson bendir á að í umræðu um gæðaskóla sé talið að góður efna- hagur Bretlands sé háður því að komið sé til móts við hæfileika nemenda og segir 27
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.