Uppeldi og menntun - 01.01.2000, Page 74
STEFNUR OG STRAUMAR I NATTURUFRÆÐIMENNTUN
- Námsþættir um eðli og hlutverk náttúruvísinda og um vinnubrögð og
færni fá sérmarkmið, sett fram sem viðfangsefni sem nemendur verða
að tileinka sér.
Vankantar
- Það vantar skilning á hver beri ábyrgð á hverju í víðara samhengi.
Kennarar bera „faglega ábyrgð", en hver er ábyrgð og hlutverk skóla,
skólaskrifstofa, kennaramenntunarstofnana, fagfélaga o.fl. Það virðist
vera trú „fræðsluyfirvalda" að það sé nóg að gefa út stefnuskrá og þar
með sé málið leyst.
- Tímaáætlun var knöpp; ekki var gefinn nægilegur tími fyrir faglegar
umræður.
- Þekkingarfræði er á reiki; við ræddum þetta aldrei nægilega vel - getum
við í alvöru og með góðri samvisku lagt fram ítarlega markmiðssetn-
ingu og samtímis hvatt kennara til að kenna í anda hugsmíðahyggju?
- í beinu framhaldi vantar kennslufræðilegt leiðarljós fyrir kennara-
menntun og símenntun og námsefnisgerð, sem hvert um sig og sam-
eiginlega gegna svo stóru hlutverki í túlkun og yfirfærslu námskrár í
skólum - hverjar eru bestu leiðirnar til að skilja náttúrufræði í grunn-
skólum landsins?
- Mjög misvísandi skilaboð eru send varðandi námsmat; sérstaklega á
unglingastigi þegar samræmd próf bresta á. Hvernig verður hægt að
samrýma það að hafa sveigjanlegt símat sem tekur mið af stöðu og getu
hvers nemanda og samræmd próf þar sem staða hans er borin saman
við stöðu annarra?
LOKAORÐ
Ég sagði í upphafi að markmið mitt væri að vekja athygli á stöðu náttúrufræði-
menntunar við aldamót. Að mínu mati stöndum við frammi fyrir nokkrum mikil-
vægum ákvörðunum.
Erum við sammála ráðherranum að Kennarar bera faglega ábyrgð á að velja heppi-
legustu og árangursríkustu leiðirnar til að ná markmiðum aðalnámskrár og skólanámskrár?
Eða eigum við að taka mark á því sem fram hefur komið í vísunum frá Banda-
ríkjunum og viðurkenna að það eru fleiri en kennarar sem bera ábyrgð á heppi-
legustu og árangursríkustu leiðunum í kennslu?
Ljóst er að háskólar, rannsóknarstofnanir, kennsluráðgjafar, námsefnishöfund-
ar, ráðuneyti og sveitarfélög hafa öll sín hlutverk í vali á þeim leiðum sem heppnast
best.
Engin keðja er sterkari en veikasti hlekkurinn og því þurfa hlutverk og ábyrgð
allra aðila sem að málinu koma að vera skýr og öllum ljós.
72