Uppeldi og menntun - 01.09.1993, Síða 46
SKILNINGUR BARNA Á ÞJÓÐFÉLAGSSKIPAN
En hvað er það sem greinir á milli barna og fullorðinna? Félagsfræðingar greina
á milli tvenns konar skilnings á þjóðfélagsskipan: Annars vegar er einstaklings-
bundinn skilningur, sem á rætur í reynslu hvers og eins, og hins vegar almennur
skilningur sem er ríkjandi skilningur viðkomandi samfélags (Schutz 1972; Berger
og Luckman 1971). Almennur skilningur kemur á undan einstaklingsbundnum þar
sem hann er alltaf til staðar í þjóðfélaginu, en til að öðlast þennan almenna skilning
verður fólk fyrst að hafa öðlast einstaklingsbundinn skilning. Þannig er almennur
skilningur bæði forsenda og afurð einstaklingsbundins skilnings. Líklegast er að
upphaf almenns skilnings sé að finna í barnæsku en óljóst er hvenær hans verður
fyrst vart og hvort hann á sér einhvern aðdraganda. Hvorki Schutz (1972) né Berger
og Luckman (1971) tengja upphaf almenns skilnings við þróun hugsunar hjá börn-
um, heldur álíta þeir að börn öðlist hann við manndómsvígslur. Eitt af markmiðum
þessarar rannsóknar er að færa rök fyrir því að breytingar, sem verða á skilningi sex
til tíu ára barna á þjóðfélagsskipan, séu dæmi um að einstaklingsbundinn skilning-
ur víki og almennur skilningur komi í staðinn.
Annað markmið þessarar rannsóknar er að útlista skilning íslenskra barna á
þjóðfélagsskipan. Hvað einkennir skilning þeirra, hvers eðlis eru breytingar á skiln-
ingi eftir aldri og hvernig er skynsamlegast að skýra þessar breytingar? Vegna
smæðar íslensks samfélags er forvitnilegt að bera saman skilning íslenskra og
erlendra barna á þjóðfélagsskipan. Ætla má að atvinnulíf og annað sem því tengist
standi íslenskum börnum nær og gæti það haft áhrif á hvernig skilningur þeirra
þróast.
Einnig verða athuguð tengsl skilnings á þjóðfélagsskipan við almenna þekk-
ingu og þekkingu á atvinnulífi. I rannsóknum sem vísað er til hér að framan er
sjónum eingöngu beint að skilningi barna, en áhugavert er að athuga hvort skiln-
ingur tengist almennri þekkingu því það gefur vísbendingu um mikilvægi reynslu
fyrir skilning á þjóðfélagsskipan.
Loks verður athugað hvort munur sé á stéttaskilningi barna eftir kyni, þó svo að
erlendar rannsóknir gefi ekki ádrátt um slíkt. I rannsókninni eru notaðar ljósmyndir
af fólki við störf og eru þær allar af karlmönnum. Hugsanlegt er að slíkt hafi áhrif á
svör barnanna á þann veg að stúlkur sýni efninu ekki eins mikinn áhuga og drengir
sem leiði til þess að þær standi sig verr. Því er nauðsynlegt að bera saman stétta-
skilning eftir kyni.
AÐFERÐ
Þátttakendur
Talað var við 72 reykvísk börn, 32 pilta og 40 stúlkur, á aldrinum sex til ellefu ára.
Þau voru í þremur skólum, 18 úr 1. bekk (meðalaldur 6 ár og 11 mánuðir), 19 úr 2.
bekk (meðalaldur 7 ár og 11 mánuðir), 15 úr 3. bekk (meðalaldur 8 ár og 11 mánuðir)
og 20 úr 5. bekk (meðalaldur 10 ár og 10 mánuðir). Bekkjarkennarar völdu í rann-
sóknina börn með mismikla getu. Foreldrum var sent bréf þar sem rannsókninni
44