Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1958, Side 11

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1958, Side 11
9 hingað kom á vegum heimspekideildar vegna doktorsprófs Kristjáns Eldjárns þjóðminjavarðar. Dr. Jan Petersen var fenginn til þess að vera annar andmælandi við doktorsvörnina, en hann er einn kunnasti sérfræðingur á Norðurlöndum í forn- menjafræði víkingaaidar. Þá hafa kennarar skólans sótt á þessu ári svo sem venja er til ýmis mót og ráðstefnur fræði- manna í ýmsum löndum, sem of langt yrði upp að telja. Slíkar ferðir eru jafnan gagnlegar og í rauninni gildur þáttur í vís- indalegu og menningarlegu samstarfi við þær þjóðir, sem vér íslendingar stöndum í nánustum tengslum við. Vil ég sér- staklega þakka þann stuðning, sem háskólinn nýtur og hefir notið nokkur undanfarin ár af hálfu híkisins og gert hefir honum fært að sinna nokkuð þessu mikilsverða hlutverki. Ég get ekki skilizt við þessa frásögn um hagi háskólans á liðnu skólaári án þess að minnast nokkuð á húsagerð, sem skólann varðar, og svo landrými skólans, sem mjög er hvað öðru tengt. Undanfarin ár hefir háskólinn hvað eftir annað sótt um leyfi til þess að mega hefja smíði húss yfir náttúru- gripasafn, en því hefir verið ákveðinn staður við Suðurgötu, við hliðina á íþróttahúsi háskólans. Þegar útséð þótti um það í vor, að leyfið fengist á þessu ári og mestar horfur á, að málið myndi enn dragast mörg ár, var að því ráði horfið í samráði við forstöðumenn náttúrugripasafnsins og mennta- málaráðuneytið að reyna að festa kaup á húsnæði, sem nægt gæti safninu um nokkurt árabil til nauðsynlegrar aðstöðu við dagleg störf safnvarða og geymslu náttúrugripa og annarra safnmuna, en fyrir hvorugu þessu varð lengur séð til nokk- urrar hlítar í núverandi húsakynnum safnsins. Réðst svo, að háskólinn keypti hæð í húsi því, sem kennt hefir verið við Svein Egilsson, inn við Hlemmtorg, og er nú unnið að því að undirbúa nauðsynlega innréttingu í húsnæði þessu. Er þess að vænta, að til þess fáist nauðsynlegt fjárfestingarleyfi sem fyrst, því mikil þörf er á því, að verkinu verði lokið án langrar tafar, helzt eigi síðar en á næsta vori. Þá hefir há- skólanum verið sagt upp húsrými fyrir efnafræðikennslu, sem hann hefir haft í húsi Atvinnudeildar háskólans. Með stofnun 2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.