Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1958, Page 105
103
Prófprédikun skal skilað skrifaðri í síðasta lagi viku eftir að texti
hefur verið tilkynntur, og í prófslok skal hún flutt opinberlega í
kapellu háskólans.
Gefa skal eina einkunn fyrir hverja grein í skriflegu og munnlegu
prófi, svo og í verklegu prófi. Einkunn fyrir ritgerð úr sémámi og
úrlausnir í munnlegum Nýja testamentisfræðum skal tvöfalda.
D. Undanþágur frá ákvœöum um tímatakmörk viö próf.
Guðfræðideild getur veitt undanþágu frá ákvæðum þessarar grein-
ar um tímatakmörk við próf, ef stúdent hefur verið veikur eða öðr-
um sérstökum ástæðum er til að dreifa.
B. Læknadeild.
42. gr.
Kennsla í læknadeild.
A. Til embœttisprófs í lœknisfræöi.
1. Efnafrœöi. Kennslan er munnleg og verkleg í ólífrænni og lífrænni
efnafræði.
2. Almenn líffœrafrœöi. Kennslan er munnleg.
3. Líffœrafrœði (kerfa- og svæðalýsing, fósturfræði og vefjafræði).
Kennslan er munnleg og verkleg. Verklega kennslan er fólgin í
líkskurðaræfingum og smásjárrannsóknum á vefjum.
4. Lífeðlis- og lífefnafrœöi. Kennslan er munnleg og verkleg. Verk-
lega kennslan er fólgin í æfingum og tilraunum, er sýni, hvernig
einstök líffæri og líffærakerfi starfa.
5. Meina- og sýklafrœði. Kennslan er munnleg og verkleg. Auk al-
mennrar meinafræði skal kenna aðalatriðin í meinafræði líffæra.
Verklegar æfingar eru í meinvefjafræði, krufningum og sýkla-
rannsóknum.
6. Lyfjafræöi. Kennslan er munnleg og verkleg. Við kennsluna skal
nota safn af lyfjum. Verklegar æfingar í lyfjagerð og tilraunum
á dýrum.
7. Heilbrigöisfrœöi og skýrslufrœöi. Kennslan er munnleg og verk-
leg. Verklegar æfingar í heilsufræðilegum rannsóknum. Stúdent-
ar skulu og kynna sér aðferð við kúabólusetningu hjá lögskip-
uðum bólusetjara.
8. Handlæknisfræöi. Kennslan er munnleg og verkleg. Verklega
kennslan er fólgin í leiðbeiningu í rannsókn sjúklinga og með-
ferð, þátttöku í almennu starfi í handlækningadeild, aðstoð við
skurðaðgerðir og skurðæfingum á dýrum.
9. Lyflœknisfrœöi. Kennslan er munnleg, skrifleg og verkleg. Verk-