Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1958, Page 110
108
Einkunn í skriflegri efnafræði telst til aðaleinkunnar við kandí-
datspróf.
2. „Morfologi“ og „teknologi".
Prófið er verklegt og munnlegt og er háð þremur misserum eftir
að nám er hafið.
Lokapróf í fyrsta hluta kandídatsprófs er munnlegt, og eru
prófgreinar þessar:
3. Líffærafræði.
4. Lífeðlis- og lífefnafræði.
Próf í öðrum hluta kandídatsprófs er munnlegt, og eru próf-
greinar þessar:
5. Meina- og sýklafræði.
6. Lyfjafræði.
Próf í þriðja hluta kandídatsprófs er munnlegt, verklegt og
skriflegt. Prófgreinar eru þessar:
7. Tannfylling.
8. Tannsmíði I, gervitannagerð.
— II, krónu- og brúagerð.
Prófin eru skrifleg og verkleg, tvöföld einkunn.
9. Sérhæfð handlæknisfræði.
10. Tannrétting.
Prófin skrifleg og verkleg.
11. Tannholds- og munnsjúkdómar.
Prófin skrifleg og „klinisk".
12. Almenn handlæknisfræði.
13. Almenn lyflæknisfræði.
14. Röntgenfræði.
Prófin eru skrifleg.
Stúdent telst ekki hafa staðizt upphafspróf, hafi hann hlotið lægri
einkunn en 7 í skriflegri efnafræði.
Hljóti stúdent lægri einkunn en 7 í tannfyllingu eða tannsmíði,
telst hann ekki hafa staðizt prófið.
Prófi skal lokið í hverjum hinna þriggja hluta námsins eigi síðar
en 5 misserum eftir að nám er hafið í hverjum hluta. Uundanþágu
frá þessum tímamörkum má þó veita, ef stúdent hefur verið veikur,
enda sé það staðfest af lækni háskólans.
46. gr.
Kennsla í lyfjafræði lyfsala.
a. InntöJcuskilyröi.
Þeir stúdentar, sem lokið hafa fullnaðarprófi við stærðfræðideild
í íslenzkum skóla, sem heimild hefur til að brautskrá stúdenta, hafa