Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1958, Síða 113
111
Standist stúdent ekki miðpróf, er honum heimilt að þreyta prófið
aftur að ári liðnu, enda hafi hann þá starfað eigi skemur en níu
mánuði við verklegt nám í greininni, frá því honum fataðist prófið.
Nú óskar stúdent, sem eigi hefur staðizt próf eða gengið frá prófi,
að þreyta próf af nýju, og verður hann þá að þreyta próf í öllum
greinum í því prófi.
Engan hluta prófs má þreyta oftar en tvisvar, og prófi skal lokið
eigi síðar en sex árum eftir að stúdent var skráður í deildina. Und-
anþágu má þó veita frá greindu tímamarki, ef stúdent hefur verið
veikur, enda sé það staðfest af lækni háskólans.
Hafi stúdent byrjað á prófi, en gengið frá því, getur hann ekki
sagt sig til prófs af nýju fyrr en að ári liðnu.
b. Einkunnastigi og ákvœöi um lágmarkseinkunn.
Við ákvörðun einkunna skal nota einkunnakerfi Örsteds, sbr. 57. gr.
um próf í verkfræðideild. Við einkunnagjöf skal jafnframt stuðzt við
úrlausnir æfingaverkefna, sem stúdentar hafa leyst á námstímanum.
Til að standast próf verður stúdent að hafa fengið a. m. k. 5.00 í
hverri af þessum verklegum greinum: galenskri lyfjagerð, búrvinnu
og efnagreiningu ásamt vöruþekkingu, og ekki minna en 5.00 að með-
altali í hverjum einstökum hluta fyrir sig.
C. Laga- og viðskiptadeild.
48. gr.
1. Kennslugreinar í lagadeild eru pessar:
1. Almenn lögfræði.
2. Þjóðhagfræði.
3. Bókfærsla.
4. Fjármunaréttur.
5. Sifjaréttur, erfðaréttur og persónuréttur.
6. Stjómskipunar- og stjómarfarsréttur.
7. Refsiréttur.
8. Réttarfar.
9. Réttarsaga.
10. Sjóréttur og félagaréttur.
11. Þjóðaréttur og alþjóðlegur einkamálaréttur.
12. Æfingar í úrlausn raunhæfra verkefna.
13. Vélritun.