Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1958, Blaðsíða 115
113
6. Raunhæft úrlausnarefni, þar sem reyna skal á sem flesta þætti
úr prófgreinum fyrra og síðara hluta, nema 3. prófgrein síðara
hluta, skriflegt próf. Einkunn í 6. prófgrein hefur tvöfalt gildi.
Áður en stúdent segir sig til síðara hluta prófsins, skal hann leggja
fram skilríki fyrir því, að hann hafi unnið í lögfræðiskrifstofu undir
handleiðslu lögfræðings um a. m. k. tveggja mánaða skeið eftir að
hann lauk fyrra hluta embættisprófs. Einnig skal hann sýna skilríki
fyrir því, að hann hafi tekið samvizkusamlega þátt í æfingum í vél-
ritun og í námskeiði í þeim þáttum úr sérstaka hluta kröfuréttar-
ins, sem ekki eru prófteknir með 1. prófgrein fyrra hluta. Heimilt er
að koma við prófi í sambandi við æfingar og námskeið.
Nú líða meira en fjögur ár frá því að stúdent lauk fyrra hluta
embættisprófs til þess að hann segir sig til síðara hluta prófsins, og
er gildi fyrra hluta prófsins þá úti. Verður stúdentinn þá að þreyta
fyrra hluta próf af nýju, ef hann kýs að halda áfram náminu. For-
próf í almennri lögfræði, bókfærslu og þjóðhagfræði halda þó gildi
sínu. Undanþágu undan því að þreyta fyrra hluta próf af nýju má
veita, ef stúdentinn hafa bagað veikindi eða svipaðar vítaleysis-
ástæður, að mati kennara deildarinnar.
50. gr.
Fullnaöarpróf í viöskiptafrœðum.
Prófgreinar eru þessar:
1. Rekstrarhagfræði, skriflegt próf.
2. Rekstrarhagfræði almenn, munnlegt próf.
3. Rekstrarhagfræði sérgreind, munnlegt próf.
4. Þjóðhagfræði, skriflegt próf.
5. Þjóðhagfræði almenn, munnlegt próf.
6. Þjóðhagfræði hagnýt og fjármálafræði, munnlegt próf.
7. íslenzk haglýsing, munnlegt próf.
8. Lögfræði, munnlegt próf.
9. Bókfærsla almenn, skriflegt próf.
10. Reikningshald, munnlegt próf.
11. Bókfærsla, endurskoðun og skattaskil, skriflegt próf.
12. Tölfræði, skriflegt próf.
13. Viðskiptareikningur, skriflegt próf.
14. Enska, skriflegt og munnlegt próf.
15. Ritgerð um hagfræðilegt efni, er stúdent velur í samráði við hag-
fræðikennara deildarinnar í lok fjórða misseris, er hann stundar
nám í viðskiptafræðum í deildinni.
Áður en stúdent tekur þátt í æfingum í bókfærslu verklegri, end-
15