Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1958, Síða 130
128
77. gr.
Að loknu doktorsprófi fær deildarforseti doktor í hendur doktors-
skjal, sem deildarforseti undirritar. Gjald fyrir doktorsskjal er 300
krónur og rennur í prófgjaldasjóð.
Nánari reglur um framkvæmd doktorsprófs skulu settar með sér-
stakri samþykkt háskólaráðs.
78. gr.
Hver sá, er hlotið hefur doktorsnafnbót frá háskólanum, á rétt á
að halda þar fyrirlestra í vísindagrein sinni, en tilkynna verður hann
það háskólaráði.
Nú þykir doktor misbeita þessum rétti sínum, og getur þá háskóla-
ráð svipt hann réttinum.
79. gr.
Háskólaráð getur ákveðin í samþykkt samkvæmt tillögum háskóla-
deildar, að heimilt sé að ganga undir meistarapróf í grein, að loknu
embættis- eða kandídatsprófi. Prófið er fólgið í samningu ritgerðar
eða ritgerða, og má áskilja, að umsækjandi gangi einnig undir munn-
legt próf í tilteknum greinum og haldi opinbera fyrirlestra. Ritgerð
skal skila til þeirrar háskóladeildar, sem í hlut á.
Við meistarapróf gilda sömu reglur um ákvörðun prófsefna og
mat á úrlausnum sem við fullnaðarpróf, þó svo að við meistarapróf
í íslenzkum fræðum gilda ákvæði 63. gr. 1. málsgr. Hver háskóla-
deild, sem ákveður að taka upp meistarapróf, ákvarðar nánar próf-
kröfur með samþykki háskólaráðs.
Vin. KAFLI
Stofnanir háskólans, eigur hans og fjármál.
80. gr.
Háskólaráð hefur yfirumsjón með einstökum háskólastofnunum,
svo sem háskólabókasafni, fyrirtækjum háskólans, svo sem happ-
drætti og kvikmyndahúsi, og með sjóðum skólans og öðrum eigum.
Háskólaráð setur einstökum fyrirtækjum háskólans samþykktir,
ræður forstjóra þeirra og setur þeim erindisbréf.
Um stjóm sjóða fer eftir því, sem stofnskrár eða aðrar samþykkt-
ir mæla fyrir um. Sama gegnir um úthlutun vísindalegra verðlauna.
Um tengsl atvinnudeildar háskólans við háskólann fer eftir því,
sem segir í HL kafla laga nr. 68 7. maí 1940 og öðrum lögum, er þar
að lúta, og um tengsl tilraunastöðvar háskólans í meinafræði við