Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1958, Side 142
140
maí s. 1. För hins íslenzka fulltrúa skyldi vera stúdentaráði alveg að
kostnaðarlausu. Þetta höfðinglega boð skyldi vera endurgjald fyrir
frábæra gestrisini, er hinir sænsku fulltrúar á Norrænu formanna-
ráðstefnunni töldu sig hafa orðið aðnjótandi hér. Til fararinnar
valdist formaður stúdentaráðs, Birgir ísl. Gunnarsson.
Þing þessi eru haldin fimmta hvert ár. Koma þar saman þar til
kjörnir fulltrúar frá öllum háskólum Svíþjóðar og móta þá stefnu,
sem stjórn Sænska stúdentasambandsins skal fylgja næstu fimm ár.
Ákvarðanir þingsins eru þó ekki bindandi fyrir stjórn sambandsins.
Á þingi þessu voru saman komnir 200 fulltrúar auk um 300 áheyrnar-
fulltrúa, m. a. frá öllum Norðurlöndum, Þýzkalandi og frá COSEC.
Á þinginu var rætt um akademiska menntun og ýmsa þætti hennar,
félagsmál stúdenta, alþjóðamál og innri starfsemi Sænska stúdenta-
sambandsins. Voru í öllum þessum málum gerðar ýtarlegar ályktanir,
sem hafa verið gefnar út sérstaklega. Allar voru móttökur hinar
rausnarlegustu af hálfu Svía.
Stuttu eftir að för þessi hafði verið ákveðin, barst stúdentaráði
boð frá stúdentum við Uppsalaháskóla um að senda fulltrúa á vor-
háðtíð skólans. Hátíð þessi er einhver mesta stúdentahátíð sænskra
stúdenta. Var ákveðið að formaður sækti ennfremur þennan mann-
fagnað, sem haldinn var 17. maí s. 1.
3. Þýzkt-skandinavískt mót. Stúdentaráði var boðið að senda full-
trúa á þýzk-skandinaviska viku, sem haldin var í Múnchen dagana
5.—12. júlí s. 1. Tóku Þjóðverjar þátt í ferðakostnaði fulltrúans, auk
þess sem háskólaráð styrkti ferð þessa.
Til fararinnar valdist Guðmundur Guðmundsson, stud. med., og fór
hann utan í byrjun júlí. í Múnchen voru saman komnir fulltrúar
stúdenta frá öllum Norðurlöndum. Dvöldust þeir í góðum fagnaði
viku þessa og undu sér allir hið bezta. Rómar Guðmundur mjög allar
móttökur Þjóðverja.
4. Það stúdentaráð, er nú situr, fylgdi áfram stefnu þeirri, sem
fyrra stúdentaráð mótaði í skiptum sínum við hin tvö alþjóðasam-
tök stúdenta. Treyst voru samskiptin við COSEC, en við IUS voru
þau ein skipti höfð, er snertu V. alþjóðaskákmót stúdenta í Búlgaríu.
Hafði stúdentaráð slæma reynslu af þeim viðskiptum.
Stúdenlaskipti.
Þegar fráfarandi stúdentaráð tók til starfa, lá ljóst fyrir, að a. m. k.
tvö deildarfélög höfðu þegar hafið undirbúning að stúdentaskiptum.
Læknadeild hafði undirbúið stúdentaskipti við bandaríska lækna-
nema og lagadeild við þýzka laganema. Ennfremur lá það fyrir, að
menntamálaráðnneytið myndi veita ákveðinn styrk til stúdentaskipta