Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1958, Page 144
142
Stúdentaráð ákvað síðar að halda áfram útgáfu blaðsins og fækk-
aði í ritnefnd niður í þrjá og kaus þá Jósef Þorgeirsson, sem var rit-
stjóri, Grétar Kristjánsson og Finn Hjörleifsson til að annast útgáfu
blaðsins. Komu síðan út tvö tölublöð, annað í marz, en hitt í október.
Mjög er nauðsynlegt að haldið verði áfram á þeirri braut að gefa
út Stúdentablað utan tyllidaga. Þetta hefur reynzt erfitt, en vonandi
tekst það í framtíðinni, því að nauðsynlegt er fyrir háskólastúdenta
að eiga sitt málgagn.
ÆskulýðsráS íslands.
Svo sem getið var í síðasta yfirliti yfir störf stúdentaráðs ákvað
stúdentaráð á fyrra ári að taka þátt í stofnun heildarsamtaka ís-
lenzkra æskulýðsfélaga, sem ætlað var að koma fram innanlands og
erlendis sem fulltrúi íslenzkrar æsku.
Undirbúningsnefnd var kjörin af hinum ýmsu landssamtökum ís-
lenzkra æskulýðsfélaga til þess að vinna að stofnuninni. Fulltrúi
stúdentaráðs í nefndinni, Bjarni Beinteinsson, stud. jur., var jafn-
framt formaður nefndarinnar.
Nefndin lauk störfum hinn 18. júní s. 1. og var Æskulýðsráð íslands
stofnað þann dag. Aðild að samtökunum eiga nú eftirtalin landssam-
bönd: Stúdentaráð Háskóla Islands, Ungmennafélag íslands, Banda-
lag ísl. farfugla, Samband bindindisfél. í skólum, íslenzkir ung-
templarar, Samband ungra framsóknarmanna, Samband ungra jafn-
aðarmanna, Samband ungra sjálfstæðismanna og Æskulýðsfylkingin.
Starfsemi Æskulýðsráðsins hér innanlands mun í framtíðinni eink-
um beinast að fræðslustarfsemi fyrir forystumenn hinna einstöku
æskulýðsfélaga. Með þeim hætti verður leitazt við að efla félagslífið
og gera það f jölbreyttara. Nýlega er lokið fyrsta námskeiði ÆRÍ fyrir
þessa forystumenn. Þótti það takast vel, enda þótt þátttaka hefði
mátt verða meiri.
ÆRÍ hefur nýlega gengið í alþjóðasamband æskulýðsins, World
Assembly of Youth (WAY), og mun haga starfsemi sinni á alþjóða-
vettvangi samkvæmt því. En að sjálfsögðu vill það hafa vinsamleg
samskipti við æskulýðssamtök hvar sem er í heiminum.
Stjórn ÆRÍ skipa nú: Júlíus Daníelsson, form., Bjarni Beinteins-
son, ritari, Magnús Óskarsson, gjaldkeri, sr. Árelíus Níelsson og
Hörður Gunnarsson.
Hagsmunamál lœknanema.
Á fundi í stúdentaráði þann 10. apríl 1958 var að tillögu Boga Mel-
steds, stud. med., gjaldkera ráðsins, skipuð nefnd til að kanna mögu-
leika á að stofna sérstakan lánasjóð fyrir læknanema. Áttu í henni