Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1958, Page 152
150
upphaflega fyrir atbeina sjóðsstjórnarinnar. Brúttótekjur sjóðsins til
ágústsloka 1958 hafa alls verið um 160.000,00. Meginhluti þess fjár
hefur komið frá fyrirtækjum í Reykjavík og Keflavík, sem greiða
árlega kr. 500,00 hvert til sjóðsins. Hefur Geir Ólafsson verið inn-
heimtumaður sjóðsins í Reykjavík, en Vilhjálmur Þórhallsson, stud.
jur., umboðsmaður sjóðsstjórnarinnar í Keflavík.
Hingað til hefur verið lagt í þrjú fjáröflunarfyrirtæki á vegum
sjóðsstjórnarinnar. Varð ríflegur ágóði af báðum þeim, sem lokið er,
en það eru knattspyrnukappleikur milli Akurnesinga og Akureyringa
í september 1955 og útgáfa á leikskrá vegna einvígis Friðriks og
Larsens 1956. Sumarið 1957 gaf sjóðsstjórnin út bókina „65 skákir
yngri skákmanna íslands“ í 3000 eintökum. Hefur bókin selzt illa
enn sem komið er, en helmingur upplagsins þarf að seljast, til þess
að ekki verði halli á útgáfunni.
Stúdentaráð hefur nýlega kosið nýja sjóðsstjórn, en hún er þannig
skipuð: Formaður Hrafn Þórisson, stud. jur., en aðrir í sjóðsstjórn:
Sverrir Bergmann, stud. med., Jón Arnalds, stud. jur., og Stefán
Briem, stud. phil.