Hugur - 01.01.1994, Side 25

Hugur - 01.01.1994, Side 25
HUGUR Aðferðafrœði í anda Rawls 23 sviðum heimspekinnar sem að annarra mati teljast til grundvallar- atriða í siðfræðilegum réttlætingum.24 Það er nokkurt ósamkomulag meðal fylgismanna aðferðafræði í anda Rawls um það að hve miklu leyti beri að undanskilja vísun í umdeildar hugmyndir um hin æðstu gæði.2-* Á Rawls hefur verið ráðist frá öllum hliðum fyrir að virðast leggja of mikið upp úr þessu atriði — og þá ekki aðeins frá þeim sem hafna frjálslyndis- stefnu eða frá þeim sem byggja aðferðafræði sína á altækum grunni. Margir af þeim sem annars hallast að frjálslyndum kenningum og styðja aðferðafræði í anda Rawls, halda því samt sem áður fram að frjálslyndir kennismiðir verði að taka afstöðu með tilteknum hugmyndum um hin æðstu gæði og gegn öðrum. Þau gæði og gildi sem frjálslyndir halda á lofti eru gjarnan talin fela í sér getu til sjálfræðis26 eða tilteknar dygðir27 svo dæmi séu tekin og jafnvel, í 24 Það er rétt að vekja athygli á annarri ástæðu fyrir því að þeir sem aðhyllast aðferðafræði í anda Rawls vilja forðast (eða óttast að flækjast í) djúpstæðar heimspekilegar deilur. Almennt séð þá felur heimspeki á enskri tungu í sér meiri verkaskiptingu heldur en til dæmis flestar evrópskar heimspekistefnur. Þrátt fyrir að á þessu séu margar undantekningar, þá er talsverður fjöldi stórbrotinna stjórnmálaheimspekinga samtímans (og herskarar meðalmanna) sem hafa ekki lesið eina einustu bók í þekkingarfræði, frumspeki eða heimspeki tungumáls, hugarvísinda eða vitundarvísinda, síðan þeir voru í námi (og hafa, ef því er að skipta, líklega aldrei lesið staf í fyrirbærafræði, túlkunarfræði eða formgerðarfræðum, fyrir utan nokkrar síður í Derrida eða Foucault sakir forvitni eða til skemmtunar). Þessi verkaskipting gerir okkur kleift að fá lánað, oft á tíðum gagnrýnislaust, frá starfssystkinum á þessum sviðum umsagnir um hvaða viðhorf eru ásættanleg og hver ekki. 25 Það er einnig ósamkomulag um hvort mögulegt sé að forðast mjög umdeild frumspekileg viðfangsefni. Til dæmis er ekki fjarri lagi að sú staðreynd að deilurnar um fóstureyðingu hafa reynst Ameríkumönnum óþægur ljár í þúfu hafi eitthvað að gera með misjafnar hugmyndir og skilgreiningar á því hvað sé að vera persóna. Sjá Jean Hampton, „Should Political Philosophy Be Done Without Metaphysics?" Ethics 99 no. 4 (1989); Ronald Dworkin, Life’s Dominion (New York: Knopf, 1993); og Rawls, Political Liberalism, s. 243 nmgr. 26 Sjá meðal annarra Joseph Raz, The Morality of Freedom (Oxford: Oxford University Press, 1986); Richard Norman, Free and Equal (Oxford: Oxford University Press, 1987); Jeremy Waldron, „Theoretical Foundations of Liberalism," Philosophical Quarterly, 37 (1987); James Nickel, „Rawls on Political Community and Principles of Juslice," Law and Philosophy, 9 (1990); Wayne Norman, „Taking „Free Action" Too Seriously," Etliics, 101 no. 3 (1991) og Taking Freedoom Too Seriously? An Essay on Analytic and Post- Analystic Political Philosophy (New York: Garland Publishing, 1991) og Will
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.