Hugur - 01.01.1994, Page 37
HUGUR 6. ÁR, 1993-1994
s. 35-46
Sigríður Þorgeirsdóttir
Frelsi, samfélag og fjölskylda
Femínísk gagnrýni, samfélagshyggja og
frjálsly ndisstefna *
í kenningum samfélagssinnaðra heimspekinga er að l'inna gagnrýni á
ákveðin grundvallaratriði í kenningum frjálslyndra stjórnmálaheim-
spekinga. Það má samt sem áður einnig líta á þessa gagnrýni sem
sjálfsgagnrýni frjálslyndrar hugsunar og frjálslynds samfélags, því þeir
höfundar sem um ræðir tilheyra sjálfir hinni frjálslyndu hefð.* 1 Deila
samfélagssinna eins og Alasdair Maclntyres, Michael J. Sandels,
Charles Taylors og Michael Walzers annars vegar og frjálslyndra
höfunda eins og John Rawls og Ronald Dworkins hins vegar, hefur
sett einna mestan svip á stjórnmálaheimspeki í Bandaríkjunum og
Kanada þaðan sem þessir höfundar eru. Nú nýverið hefur þessi innri
gagnrýni á frjálslynt samfélag vakið áhuga í öðrum löndum, ef til vill
vegna þverrandi fylgis draumkenndrar og róttækrar þjóðfélags-
gagnrýni í kjölfar breytinga í stjórnmálum á undanförnum árum.
Ef sjónum er beint að sambandi einstaklings og samfélags má sjá að
samfélagssinnar harma og gagnrýna þá einstaklingshyggju og skort á
samfélagsvitund sem gætir í frjálslyndum samfélögum. Þeir líta svo á
að endurreisn samfélagsvitundar sé forsenda þess að sættast á um
sameiginleg gildi og verðmætamat. Með hliðsjón af þeirri áskorun
sem felst í þessari gagnrýni spyr þýski heimspekingurinn Axel
Honneth: „f hverskonar heildarsamhengi þurfa gildi að vera til að
* [Erindi þetta, „Freedom, Community and the Family. Feminist Critique,
Communitarianism and Liberalism" var futt á alþjóðlegu þingi réttarheimspekinga
sem haldið var í Reykjavík 1993. Erindið var síðan birt í Rechtstheorie, Zeitschrift
fiir Logik, Methodenlehre Kybemetik unde Soziologie des Rechts, 15 hefti, Reclit,
Gerechtigkeit und der Staat. Ritstj. Mikael M. Karlsson, Ólafur Páll Jónsson og
Eyja Margrét Brynjarsdóttir. (Berlin: Duncker & Humblot, 1993). — Þýð.]
1 M. Walzer, „The Communitarian Critique of Liberalism", Political Theory 18
(1990), s. 19.