Hugur - 01.01.1994, Side 52

Hugur - 01.01.1994, Side 52
50 Jóhann Páll Arnason HUGUR öðrum hugmyndum sem mest hefur borið á í nýlegu framlagi Frakka til þessarar rökræðu.2 Þar er lögð megináhersla á hversu opin og óviss sagan er, fremur en á algilda og óbreytanlega stefnu þróunarinnar. Er þá litið á lýðræðisbyltinguna sem róttæk umskipti frá hefðbundnu skipulagi í samlífi manna og sem tilraun til að skilgreina grundvöll þess upp á nýtt. Hvað varðar þróun lýðræðisins á síðari tímum, þá er mestan part litið á hana sem mismunandi tilraunir manna til að takast á við orsakir og langtímaafleiðingar þein'a róttæku breytinga sem urðu þegar í upphafi. Sérstaklega er bent á að það verkefni að byggja upp samfélagsskipulag sem grundvallast á fullveldi einstaklinga og sjálf- ræði þeirra, ásamt áherslubreytingum frá trúarlegum til veraldlegri valdakerfa, orsaki viðvarandi vandamál í sjálfri samfélagsgerðinni. Því þarf stöðugt að takast á við innbyggðar mótsagnir þegar verið er að festa lýðræði í sessi og einnig gæti þurft að horfast í augu við aftur- för. Innan þessa sjónarhorns er að sjálfsögðu svigrúm fyrir deilur. Olíkir höfundar segja hver sína sögu af undanfara og forsendum lýðræðisins — þótt hlutverk forsendnanna sé mun óljósara og óbeinna en greinargerð þróunarsinna gefur til kynna — og af þeim þáttum sem mest áhrif hafa á þróunina. Þannig hefur til dæmis Marcel Gauchet haldið því fram að jafnvel hin öfgafyllstu áform um róttækt lýðræði á þessari öld séu í grundvallaratriðum innan þess ramma umræðu og ímyndunar sem mótaður var í lok átjándu aldar. Claude Lefort hefur hins vegar fremur hallast að því að túlka beri sögu nútímalýðræðis sem sögu varanlegrar byltingar. En slíkur ágreiningur er ekki eins mikilvægur og „ættarsvipurinn“ sem bent var á að ofan. Loks hefur því verið haldið fram að lýðræði — skilgreint sem aðlögun félagslegs valds að hagsmunabaráttu einstaklinganna — endurspegli „náttúrlegt stjórnskipulag mannskepnunnar11.3 Ennfremur að þetta náttúrlega fyrirkomulag sé á mjög almennan en afgerandi hátt einkennandi fyrir frumstæð samfélög. Homo democraticus — hinn lýðræðislegi maður — er samkvæmt þessari skoðun tvíburabróðir homo economicus — hins hagsýna manns; báðar tegundirnar búa yfir 2 Sjá sérstaklega Claude Lefort, L'invention démocratique (París, 1981), Essais sur le politique (París, 1986) Écrire — A l'épreuve du politique (París, 1992); Frangois Furet, Penser la revolution frangaise (París, 1978); og Marcel Gauchet, La révolution des droits de l'homme, (París, 1989). 3 Sjá J. Baechler, Démocraties (París, 1985).
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.