Hlín - 01.01.1931, Page 44
42
Hlin
Hið sama gildir um sjúkdómana, að miklu skiftir að
hafa vit og þekkingu á að forðast þá og koma í veg
fyrir þá, þegar þess er nokkur kostur. Að leiðbeina í
þeim efnum er gildur þáttur í starfi og skyldum lækn-
anna. —
Og þjóðin má ekki skella skollaeyrum við hollum
ráðum og hverskonar fræðslu, er miðar að því að varð-
veita góða heilbrigði, sem er dýrmætasti fjársjóður
hvers einasta manns. —
S. K.
Heimilisiðnaður.
Skýrsla um starfsemi
HeimilisiðnuðarfjeUigs ísUmds á/ríð 1930.
Fjelagið byrjaði árið 1930 með því að halda vefnað-
arnámskeið. Fór kenslan fram í Landsspítalanum, og
var Brynhildur Ingvarsdóttir kennarinn. Námskeiðið
stóð yfir frá 5. jan. til 15. apríl, en að því loknu var
haldin sýning á því, sem ofið hafði verið. —
Sýningin var haldin í hinu nýsmíðaða húsi Mjólkur-
fjelags Reykjavíkur, við Hafnarstræti. Þóttu munir
þeir, er unnir höfðu verið, hinir prýðilegustu; var
mikið ofið úr íslenskri ull, og var bandið ýmist unnið
í vjelum eða í heimahúsum og með ágætum litum.
gamlir, þar eð líkindi væru til að þeir þyrftu þá að fara að
nota gleraugu.
Ritstj.