Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Blaðsíða 151
Leiðbeiningar fyrir höfunda
Tímaritið Uppeldi og menntun kemur út tvisvar á ári. Greinar til birtingar í vorhefti
tímaritsins þurfa að berast fyrir 1. október og greinar til birtingar í haustheftinu fyrir
1. maí. Stefnt er að því að haustheftið verði að hluta til þemahefti. Allar greinar skal
senda til ritstjóra á tölvutæku formi.
Ritnefnd tekur afstöðu til þess hvort grein fæst birt í tímaritinu. Við ákvörðun um
birtingu greina er í fyrsta lagi tekið mið af þeirri stefnu að um sé að ræða fræðilegar
og/eða rannsóknartengdar greinar, í öðru lagi að þær eigi erindi til þeirra sem sinna
uppeldis- og menntamálum. Í þriðja lagi verður gætt að heildasvip tímaritsins hverju
sinni.
Meginreglan er sú að innsendar greinar hafi ekki birst annars staðar. Undantekn-
ing er gerð frá þessari reglu ef ritnefnd telur greinar sem birst hafa í viðurkenndum
erlendum fagtímaritum eftirsóknarverðar til birtingar á íslensku. Erlendum fræði-
mönnum er heimilt að birta efni í tímaritinu á ensku. Fyrsti höfundur greinar er jafn-
framt ábyrgðarmaður.
Ef ritnefnd metur greinina svo að hún eigi erindi í tímaritið og uppfyllir kröfur um
efni og framsetningu er hún send til a.m.k. tveggja aðila til ritrýningar. Grein sem
samþykkt er með fyrirvara um að brugðist sé við faglegum ábendingum er send til
greinarhöfundar til lagfæringar í samræmi við ábendingar ritrýna og ritstjórnar. Höf-
undur sendir greinina síðan aftur til ritnefndar með greinargerð um þær breytingar
sem hann hefur gert á greininni.
Framsetning efnis
Miðað er við að framsetning efnis sé í samræmi við venjur sem gilda í virtum erlend-
um tímaritum um uppeldis- og menntamál. Miðað er við APA kerfið við framsetn-
ingu efnis, þetta á m.a. við um gerð heimildaskrár, tilvísanir í texta, töflur og myndir,
kaflafyrirsagnir og lengd beinna tilvitanna. Reglur um framsetningu má finna t.d. í
Handbók Sálfræðiritsins (1995) eftir Einar Guðmundsson, Gagnfræðakveri handa háskóla-
nemum (2002) eftir Friðrik H. Jónsson og Sigurð J. Grétarsson og Publication Manual of
the American Psychological Association 5. útgáfa (2001).Vitna skal til skírnar- og föður-
nafns íslensks höfundar en ekki föðurnafns eingöngu eins og gildir um erlenda
höfunda. Jafnframt skal raða íslenskum höfundum í heimildaskrá samkvæmt
skírnarnafni þeirra. Ætlast er til að beinar tilvitnanir úr erlendum tungumálum séu
þýddar á íslensku.
Handrit skulu vera með 12 pt. letri (Times New Roman) og línubili 1,5. Einfalt
orðabil skal vera á eftir punkti. Notið íslenskar gæsalappir. Greinar skulu vera vel
yfirfarnar með tilliti til málfars og framsetningar.
Lengd handrita skal að jafnaði vera 15–25 blaðsíður. Á forsíðu skal koma fram heiti
greinar og nafn höfundar. Á eftir forsíðu á að vera u.þ.b.100–150 orða útdráttur á
íslensku og annar á ensku. Á þriðju síðu handrits eða við upphaf greinarinnar sjálfrar
skal heiti greinarinnar einnig koma fram, án nafns höfundar. Myndir og töflur skulu
R Ú N A R V I L H J Á L M S S O N
151