Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Blaðsíða 104

Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Blaðsíða 104
INNGANGUR Verkefnið Grunnskólar í ólíkum byggðarlögum (GÓB), hefur verið í mótun undan- farin ár. Megintilgangur með GÓB-verkefninu er að afla upplýsinga um starfsemi grunnskóla með áherslu á að skoða og greina stöðu skólans og starfsárangur með hliðsjón af aðstæðum hans. Einkum er horft til efnahagslegra skilyrða og félagslegra áhrifaafla í nærsamfélagi skólans eða á því atvinnusvæði þar sem hann starfar. Ætl- unin var að til yrði gagnagrunnur um starfsskilyrði og félagslegar aðstæður í við- komandi grunnskóla og byggðarlagi, eins konar landslýsing skólastarfs í grunnskól- um við aldamót. Alls hefur aðferðin verið reynd þrisvar sinnum, tvisvar í grunnskól- um á höfuðborgarsvæðinu og Suðvesturlandi og síðast haustið 2003 á Norðurlandi. Í hverri umferð var verkið reynt í þremur skólum; einum í þéttbýli, einum í sjávar- þorpi og einum í sveit. Vinnan undanfarin ár hefur að langmestu leyti beinst að því að þróa aðferðir og móta vinnugögn sem best þykja henta þessum tilgangi. Hér verð- ur greint frá markmiðum, rannsóknaraðferð, vinnu á vettvangi og með völdum dæmum úr þriðju umferð kynntar nokkrar niðurstöður sem fyrir liggja. Eftirfarandi þrjár meginspurningar liggja til grundvallar GÓB-verkefninu: 1. Í hverju eru fólgnar helstu fyrirætlanir eða væntingar foreldra, kennara, nem- enda og skólayfirvalda um „góðan grunnskóla“? 2. Hvernig samrýmast miklar námskröfur og góður árangur kröfum um að kennarar sinni jafnframt uppeldishlutverkinu, þ.e. geri nemendum kleift að þroskast, persónulega og félagslega? 3. Hvaða áhrif hafa efnahagsleg skilyrði grunnskóla og félagsleg staða þeirra í byggðarlaginu á námsárangur nemenda og gæði skólastarfs? Verkefnið skiptist í fjóra þætti en hingað til hefur aðeins verið unnið með þrjá þeirra á vettvangi, þ.e. byrjunarviðtal; viðhorfakönnun lögð fyrir foreldra, starfsfólk grunn- skólans og nemendur og lokaviðtal sem tekið er við 2–3 fulltrúa úr öllum hópum starfenda grunnskólans. Hugtakið „starfendur grunnskólans“ er notað um sex hópa; nemendur, foreldra, kennara, annað starfsfólk en kennara, skólastjórnendur og loks yfirstjórn viðkomandi skóla (sveitarstjórn, skólanefnd, o.fl.). Til viðbótar því sem nefnt er að framan voru eftirtalin áhersluatriði tilgreind í upp- hafi GÓB-verkefnisins: • Skoða viðhorf fólks til skólamenntunar á Íslandi. • Athuga framtíðarsýn hagsmunaaðila um betri skóla. • Kanna skilyrði þess að umbætur á skólastarfi heppnist. Mörg skilyrði þurfa að vera fyrir hendi til að áætlanir um umbætur í kennslu og námi skili árangri. Tilskilin starfsmenntun kennara, vönduð kennslugögn, rýmilegt hús- næði og góð vinnuaðstaða hljóta vissulega að auka líkur á góðum árangri í námi en þessi jákvæðu skilyrði eru þó engin trygging fyrir fyllsta árangri eða hámarksgæðum skólastarfs. Til að svo megi verða voru sérstaklega tilgreind þrjú atriði sem væru mikilvæg: G R U N N S K Ó L A R Í Ó L Í K U M B Y G G Ð A R L Ö G U M 104
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.