Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Blaðsíða 38

Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Blaðsíða 38
Athygli vekur að nánast allir eru nokkuð eða mjög ánægðir með þann stuðning sem þeir fá við að gera, þ.e. þjálfun og æfingu í að kenna. Ástæða er til að skoða sérstaklega svör við spurningum um að þekkja eða vita. Nán- ast öll námskeið í Kennaraháskóla Íslands hafa það að markmiði að efla þekkingu nemanna, hagnýta eða fræðilega. Áberandi er að nemendur vilja þekkja og vita meira. Þeir vilja aukna áherslu á þessa þætti. Það kemur ekki á óvart að nemarnir vilji leggja meiri áherslu á að kynnast hagnýtum aðferðum í kennslu (85%). Á hinn bóginn kemur á óvart hversu margir hefðu viljað leggja meiri áherslu á þekkingu í uppeldis- greinum (42%) en kennaranemar hafa stundum átt erfitt með að koma auga á nota- gildi slíkarar þekkingar. Margir vilja meiri áherslu á þekkingu sem tengist náms- greinum skóla (65%) og kemur sú niðurstaða ekki á óvart, þar sem nauðsyn á meiri dýpkun í námsgreinum hefur oft verið rædd innan stofnunarinnar. Vert er að benda á að enda þótt nemarnir vilji öðlast meiri þekkingu á þessum sviðum þá finnst þeim ekki rétt að leggja minni áherslu á aðra þætti námsins, t.d. verklega. Einnig vekur athygli að þeir sem vilja auka áherslu á hagnýta þekkingu vilja samt sem áður ekki draga úr áherslu á annars konar þekkingu, þ.e. á uppeldisgreinar eða námsgreinar skóla. Kennaranemarnir vilja greinilega læra meira. Enda þótt námskeið í kennaranámi miði að því að efla bæði fræðilega og hagnýta þekkingu kennaranema, er ljóst að margir nemendur telja kennaranámið ekki hafa stutt vel við slíka þekkingu. Helst eru nemarnir sáttir við stuðning við þekkingu í uppeldisgreinum; einungis 7% telja að kennaranámið hafi ekki stutt vel við slíka þekkingu. Athygli vekur að 22% þátttakenda segja að kennaranámið hafi ekki stutt vel við þekkingu sem tengist námsgreinum í skóla og 49% segja það ekki hafa stutt vel við hagnýta þekkingu þeirra á aðferðum til að ná árangri í kennslu. Þetta vekur upp spurningar þar sem mörg námskeið stefna einmitt að því að styðja við slíka kunnáttu. Líkleg skýring er sú að nemunum nægi ekki að kynnast aðferðum sem hafa gagnast öðrum kennurum vel. Þeir þurfa að sjá fyrir hvernig þeir sjálfir geta tekist á við slík viðfangsefni. Í grein minni í Uppeldi og menntun (2004) er vitnað í svar frá nema þar sem hann segist enn hafa mestar áhyggjur af agavandamálum, þótt hann hafi kynnst mörgum aðferðum til að halda aga. Slík þekking verður greinilega að tengjast persónulegri reynslu til að vera metin sem hæfni; nemarnir verða að átta sig á hvernig þeir sjálfir geta beitt kunnáttunni. Mörg námskeið leggja áherslu á ígrundun og á að efla persónulegan styrk kenn- aranema, þótt slíkir þættir séu sjaldnast meginmarkmið námskeiða. Nemarnir virðast vera nokkuð ánægðir með þann stuðning sem þeir fá við þessa þætti, einkum stuðning við samskipti við annað fólk, enda er mikið um samvinnuverkefni í skól- anum. Í ljós kemur að rúmur þriðjungur vill að meiri áhersla sé lögð á annars vegar persónulegan styrk til að fást við starfið og hins vegar á sjálfskoðun og sjálfspæling- ar, en þetta styður fyrri niðurstöður rannsókna um mikilvægi persónulegrar hliðar starfshæfninnar (Hargreaves, 1998; McLean, 1999; Ragnhildur Bjarnadóttir, 2004). H V E R N I G S T Y Ð U R K E N N A R A H Á S K Ó L I Í S L A N D S V I Ð S T A R F S H Æ F N I K E N N A R A N E M A ? 38
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.