Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Blaðsíða 60

Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Blaðsíða 60
ígrunda stöðuna, endurmeta og spyrja: Hvað gerum við hér og hvers vegna? Niður- staðan var skráð í ljósi nýrrar umræðu og birt í formi rits sem í dag er skólanámskrá leikskólans. Allir starfsmenn leikskólans voru þátttakendur á fyrstu stigum námskrárgerðar- innar. Þeir tóku þátt í starfsmannakönnun og umræðum, en um síðari hluta vinn- unnar, að flokka efni og skrá niðurstöður, sáu leikskólakennarar leikskólans og leik- skólastjórinn. Því er haldið fram að ein grundvallarforsenda skólanámskrárgerðar sé að allt starfsfólk skóla sé tilbúið að leggja sitt af mörkum enda eigi skólanámskráin að endurspegla sameiginleg markmið og vera öflugt þróunartæki hvers skóla (Menntamálaráðuneytið, 1997). Í vinnuferlinu var lögð áhersla á samvinnu, reglulega fundi og uppbyggilega gagnrýni. Starfsmenn eru sammála um að þrátt fyrir ágrein- ing um ýmis atriði leiddu umræður til samkomulags eins og fram kemur í orðum Grétu sem er leiðbeinandi: „Það skiptir máli því að maður var óhræddur við að spyrja ef maður var ekki viss. Traustið innan starfsmannahópsins er númer eitt, tvö og þrjú í þessu starfi, það er ekki spurning.“ Ólafur H. Jóhannsson (2003) segir að mikilvægt sé að fást við ágreining þegar hann kemur upp á yfirborðið, en þó meira um vert að skapa jákvætt andrúmsloft sem ein- kennist af samvinnu, heilindum og trausti því í slíku andrúmslofti sé hægt að skapa það viðhorf að í ágreiningi felist tækifæri til umbóta. Starfsmenn leikskólans fylgdust með framgangi vinnunnar með því að deildarstjóri hverrar deildar kynnti stöðuna á deildarfundum. Starfsmenn litu á það sem hluta af því að taka þátt í verkinu. Mótun sameiginlegrar sýnar á starfið með því að skilgreina hugtök og taka mark á niðurstöðum viðhorfakönnunar, annars vegar á meðal starfsmanna og hins vegar foreldra barna í leikskólanum, leggur grunninn að þeim meginmarkmiðum sem koma fram í skólanámskrá leikskólans í dag. Formlegt skipulag innan leikskólans, deildar- og starfsmannafundir, skipulags- og námskeiðsdagar, voru nýttir til um- ræðna auk þess sem ákveðinn hópur vann yfirvinnu til að ljúka verkinu. Sterkustu áhrifaþættir á gerð og innihald skólanámskrárinnar voru: handbók leik- skólans, þróunarverkefni sem unnið var, hugmyndafræði Johns Deweys og Aðal- námskrá leikskóla. Starfsmenn voru sammála um að flokkun á skráðu efni leik- skólans og viðfangsefnum hefði verið flókin. Þeir voru einna lengst að átta sig á hvað tilheyrði skólanámskrá og hvað handbók leikskólans. Þeirra niðurstaða var að inni- hald handbókar leikskólans og skólanámskrá væri ekki það sama nema að hluta til. Skólanámskráin inniheldur hugmyndafræði leikskólans en handbókin hagnýtar leið- beiningar, vinnuskipulag og reglur. Tilurð handbókar leikskólans leiddi til þess að starfsmenn áttu auðveldara með að fara yfir og endurmeta starfshætti leikskólans enda telja þeir að sú forvinna sem unnin var með gerð hennar hafi stuðlað að því að skólanámskrárgerðin gekk greið- lega. Þróunarverkefnið sem unnið var í leikskólanum er „rauði þráðurinn“ í hug- myndafræðinni sem skólanámskráin byggir á. Með því fundu starfsmenn þá sér- stöðu í leikskólastarfinu sem þeir sóttust eftir og telja að við námskrárgerðina hafi þróunarverkefnið orðið sýnilegra og sérstaða skólans skýrst enn frekar. Þóra aðstoð- arleikskólastjóri sagði: Þ Ö G U L Þ E K K I N G F Æ R M Á L – S K Ó L A N Á M S K R Á R G E R Ð Í L E I K S K Ó L A 60
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.