Uppeldi og menntun - 01.01.2007, Page 80
80
Niðurstöður sýna að samband er milli þess að lenda oft í hlutverkaárekstrum og finna
til tilfinningaþrots, hlutgervingar og minnkaðs starfsárangurs. Þannig virðast árekstrar
milli hlutverka ýta undir kulnun svo að mælanlegt reynist í öllum þremur undirþáttum
kulnunar.
Tafla 4 – Samband milli hlutverkaskýrleika og undirþátta kulnunar.
Hlutverkaskýrleiki
Tilfinningaþrot Oft Miðlungs Sjaldan Alls Fjöldi
Minnst 38 52 10 100 52
Meðal 35 37 28 100 54
Mest 20 41 39 100 61
167
Kendall’s Tau-b = 0,232; P<0,001
Hlutgerving Oft Miðlungs Sjaldan Alls Fjöldi
Minnst 43 31 25 100 51
Meðal 33 48 20 100 46
Mest 18 49 33 100 72
169
Kendall’s Tau-b = 0,177; P<0,05
Starfsárangur Oft Miðlungs Sjaldan Alls Fjöldi
Minnst 18 44 38 100 50
Meðal 26 43 31 100 35
Mest 40 39 21 100 67
152
Kendall’s Tau-b = -0,203; P<0,01
Niðurstöður sýna að samband er milli óskýrra og illa skilgreindra hlutverka á vinnu-
stað og allra undirþátta kulnunar, þ.e. tilfinningaþrots, hlutgervingar og starfsárang-
urs. Má leiða líkur að því að óskýr hlutverk valdi kulnun.
Starf og starfsumhverfi kennara
Margvíslegar spurningar um starfsumhverfi kennara sýndu ekki mikla marktæka
fylgni við kulnun, að undanskildum spurningum um afstöðu til sveigjanleika,
aðalnámskrár og um hvatningu í starfi. Niðurstöður þeirra sýndu marktæka fylgni
við alla þrjá undirþætti kulnunar.
L ÍÐAN KENNARA Í STARFI – VINNUGLEÐI EÐA KULNUN?