Morgunn - 01.12.1932, Blaðsíða 92
218
MORGUNN
Osló-„rannsóknirnar“.
Svar til Snorra Halldórssonar læknis.
Hi'. héraðslæknir Snorri Halldórsson á Breiðabóls-
stað ritaði síðastl. vor grein í Morgunblaðið, sem kom
þar út 12. júní. Grein læknisins er samin út af grein
eftir mig, sem birzt hafði í Mgbl. 24. marz síðastliðinn
og var um svikaákærur Carstensens nokkurs gegn Ein-
ari Nielsen sem miðli. Það, sem einkanlega virðist hafa
komið lækninum af stað, er eftirfarandi úmmæli í grein
minni:
,,Það er ekki til neins að hampa framan í mig upp-
þotinu í Osló 1922. Þær rannsóknir met eg að engu“.
Af því að norskir prófessorar voru að nokkru leyti
við þetta ,,uppþot“ riðnir, tekur S. H. sér þessi ummæli
nærri, með því að honum ,,virðist að Norðmenn geti tek-
ið það svo, sem hér sé verið að lítilsvirða stærstu menta-
stofnun þeirra, háskólann í Osló“.
Þessari aðfinslu læknisins er í raun og veru svar-
að allítarlega fyrir 10 árum, í 3. árg. Morcjuns, bls. 228—
239. Þar er gerð, að mér finst, sæmilega ljós grein fyrir
því, hvernig á því standi, að lotningin er ekki mikil hjá
mér fyrir þeim ,,rannsóknum“. Ef til vill ætti eg að geta
látið við það sitja að vísa til þeirrar ritgjörðar. En hún
er orðin svo gömul, sem eg hefi þegar sagt, og þar af
leiðandi að líkindum í tiltölulega fárra manna höndum.
Og svo er ekki ástæðulaust, þar sem þetta tilefni býðst,
að minnast nokkuð gjör á þessa Noregsferð Nielsens en
áður hefir verið gert á íslenzku.
Mig langar til að taka það fram, áður en eg byrja á
því söguágripi, að eg afneita með öllu þeirri háskóladýrk-
un, sem mér, sannast að segja, virðist vaka fyrir S. H.
lækni, að óheimilt sé að gagnrýna gjörðir og ályktanir