Morgunn - 01.12.1932, Blaðsíða 114
'240
M O R G U N N
Nei, þegar vísindin hafa sogið í sig sálrænu fyrir-
biúgðin, þá neyðast kirkjurnar til þess að sjúga í sig
spiritismann algerlega, eða að öðrum kosti hætta að vera
til. Þetta er jafn óhjákvæmilegt eins og sólarupprásin
á morgun.
En eftir hverju eiga kirkjurnar að bíða? Fyrir
fimmtíu árum börðust kirkjurnar aftastar í fylkingu
gegn Darvínskenningunni — ,,jörðin var þakin líkum
guðfræðinga", eins og einn gamansamur vísindamaður
komst þá að orði.
Nú á tímum er hin gamla aðstaða kirknanna töp-
uð, svo að engin von er um hana framar. Hvers vegna
á enn að bíða gamla, óvirðulega ósigurinn fyrir stað-
reyndum, sem ekki verður undan komist? Hvers vegna
ekki þiggja það, sem spiritisminn hefir á boðstólum,
skilja hveitið frá hisminu, og með því gera uppgötvan-
ir, sem svo eru mikilvægar, að það, sem Kólumbus fann,
er sem ekkert í samanburði við þær?“
,,Light“ flytur ritstjórnargrein um þennan spádóm
og því þykir líklegt, að presturinn verði sannspár. Blað-
ið bendir á, hvernig farið hefir áður fyrir kirkjunni. Hún
lýsti þá kenningu Galileos, að jörðin gengi kringum sól-
ina, óhugsanlega og trúarvillu, en hefir algjörlega ,,sog-
að“ hana í sig. Þeirri jarðfræði-upgötvun, að aldur jarð-
arinnar væri miljónir ára, í stað fáar þúsundir, eins og
kirkjurnar kendu, var afneitað sem „djöfullegri;“ en
nú kannast alir við, að hún sé rétt. Flestir ef ekki allir
guðfræðingar samsinna nú framþróunarkenningunni.
„Staðreyndir þær, sem spiritisminn er grundvallaður á,
eru eins eðlilegar og verulegar og þær staðreyndir, sem
Galileo og hinir miklu jarðfræðingar lögðu fram“, seg-
ir blaðið, „en staðreyndir spiritismans koma trúarbrögð-
unum meira við en hinar og eru mikilvægari“.