Morgunn - 01.12.1932, Blaðsíða 55
MORGUNN
181
€fni — vísindaleg, heimspekileg o. s. frv. Að hinu leyt-
inu hefir þetta sína annmarka, því að frá miðlinum
kann eitthvað að blandast bagalega saman við það efni,
sem stjórnandinn vill koma gegnum hann, einkum ef
það er andlegs eða vísindalegs eðlis, og liggur alveg
utan við þekkingarsvið miðilsins; undirvitundarótti hans
við það að efnið aflagist kann að valda svo miklum
tálmunum, að mjög lítið komist í gegn. Það er mjög mikið
komið undir hugarástandi miðilsins, hvort svona fer eða
ekki. Þessi þriðja tegund sambandsástandins getur
reynst mjög vel, ef miðillinn hefir fengið tilsögn í að
þjálfa hugann og ef hann hefir vanið hugann á að veita
því viðtöku, sem til er ætlast. í það og það skiftið.
„Margir sálrænir menn eru ráðnir í því, að annað-
hvort vilja þeir fyrstu tegund sambandsástandsins eða
enga“, segir Mrs. Leonard. ,,Þetta er skaði, því að það
kann að vera þeim ókleift að komast í annað ástand,
eða þeir kunna að þurfa að bíða mánuðum eða árum sam-
an, meðan verið er að berjast við það frá öðrum heimi að
koma þeim í algert meðvitundarleysi. Ef aftur á móti miðl-
arnir væru eftirlátssamir, þá mætti fá mikið gagnlegt efni
frá stjórnendunum, meðan á þessari töf stendur, og djúpi
trancinn kann að lokum að koma alveg eðlilega og með
Minni áreynslu. Þegar eg lít aftur í tímann, sé eg að eg
hefi eytt nokkurum árum til ónýtis, af því að eg krafð-
ist þess, að annaðhvort skyldi Feda hafa fult vald á mér
eða alls ekkert“.
Mér þótti merkilegt og lærdómsríkt að lesa þenn-
an kafla bókarinnar. Svo stendur á, að eg hafði verið í sam-
vinnu við miðla, sem litu eins á þetta mál eins og Mrs.
Leonard hafði upphaflega á það litið, og það hafði háð
salrænni starfsemi þeirra. Leiðbeiningar frúai'innar í
þessu efni hafa þar gert mjög mikið gagn.
Sálarrannsóknarmálið er nú orðið 84 ára gamalt.
Vissa er nú fyrir því fengin, að það hefir reynst ódrep-
andi. Það er óyggjandi sannleikur, að samband hefir