Morgunn - 01.06.1935, Qupperneq 30
24
MORGUNN
um landsins, mesta merkismann, vel lærðan, orðlagðan
fyrir góðvild og samvizkusemi. Hann sagði mér nokkuð af
reynslu sinni og örðugleikum, og mér þótti mikils um vert.
Meðal annars sagði hann mér frá því, að um eitt skeið
hefðu sóknarmenn hans hætt að koma til kirkju. Prófastur
hafði kappsamlega lesið nýrri tima guðfræðirit og var vel
að sér í hinni svonefndu nýju guðfræði. Hann fór að snúa
prédikunum sínum upp í fræðslu um hinar nýju kenningar
og rannsóknir þær, sem þær væru reistar á. Nú fór fólkið
að koma og kirkjan varð ágætlega vel sótt. Eftir nokkum
tíma fór prófastur að fá samvizkubit út af þessu Honum
fanst hann mundi ekki vera prestur safnaðarins til þess að'
flytja mönnum þennan fróðleik. Þessi boðskapur væri ekki
nógu mikið guðrækilegs eðlis, talaði ekki nægilega til trú-
arhæfileikans og tilfinninganna. Svo hann skipti um prédik-
unarefni, hætti þessari fræðslu, fór að prédika líkt og áð-
ur og vandaði ræður sínar svo sem hann hafði vit á. Þá
hætti fólkið aftur að koma. Af því að eg fann, hvað raann-
inum var þetta mikið alvörumál og að þessi reynsla var
honum þungbær, þá fann eg líka, að eg gat lalað við hanre
hispurslaust og af fylstu einlægni, þó að eg sæi það vel,
að það var nokkuð skoplegt, ef svo liti út, sem eg ætlaði
að fara að kenna þessum merka og gáfaða kennimanni að
semja ræður. Svo að eg vakti máls á því, að prédikanir
hans virtust hafa verið of einhliða til þess að fullnægja
hvorutveggja, löngun hans til þess að efla guðrækni fólks-
ins og þrá safnaðarins eftir fróðleik og nýjum hugsunum.
Prédikunarlistin mundi að miklu leyti fólgin í því, að láta
þetta renna saman, nota fræðsluna til þess að efla þær
kendir, sem prédikarinn teldi mikilvægastar. í þessu hefði
snild síra Haralds Níelssonar aðallega verið fólgin, auk
mælskunnar. Prófasturinn sagði, að þetta væri sér fyllilega
Ijóst. En það væri sér ofurefli. Hann hefði enga æfingu
fengið í þessa átt, og þetta gæti hann ekki. Og eg sá, að
nú var verið að draga fortjaldið frá einni af tragedíum
lífsins.