Morgunn - 01.06.1935, Blaðsíða 53
MORGUNN
47
öllum þessum óhöppum, er komu fyrir James, meðan þessi
undarlegi steinn var í fórum hans. Auðvitað er ekki unt
að koma með neinar úrslitasannanir eða fullnægjandi skýr-
ingar fyrir því, að svo hafi verið, en óneitanlega eru þess-
ir viðburðir allkynlegir og dularfullir. Eru þeir aðeins röð
eintómra tilviljana, eða stöndum vér þar andspænis ein-
hverju ægilegu valdi, er sjálft er falið í skugganum? en
getur eigi að síður valdið ógnum og óhamingju, eða er
það töframaðurinn sjálfur, sem þarna var heygður fyrir
tugum ára, sem þarna er að verki? Og ef svo kynni að
vera, hvað veldur þá þvi, að eftir tugi ára skuli honum
ekki vera sama, þó að hann sé numinn burt af þessum
stað? Vér getum spurt og spurt, án þess að komast að
nokkurri fullnaðarniðurstöðu. Hver og einn verður að leysa
þá gátu eða svara slíkum spurningum, eftir því sem hon-
um þykir sennilegast. Með eintómum fullyrðingum um hjá-
trú og hindurvitni verður ekkert skýrt; þær leiða ekkert í
ljós nema heimsku og vanþekkingu þess, er sterkast kveð-
ur þar að orði. Að minsta kosti nægja slíkar fullyrðingar
naumast til þess að skýra háttu og atferli fuglanna, and-
anna og svananna, sem njóta vatnsins gæða meðan steinn-
inn er ekki í hólmanum, en hverfa svo á brott, er draslið
hefir aftur verið látið þar; naumast verður þeim brugðið
um hjátrú.
En slikir viðburðir sem þessir, eða áþekkar skýringar
á þeim, eru nokkuð almennar í reynslu mannanna og kenn-
ir þess einnig i þjóðtrú vor Islendinga. Alkunnar eru sagn-
ir um einstaka hóla, steina og ýmsa staði, er ekki mætti
róta við. Einatt, er slíkt hefir staðið fyrir dyrum, hafa þeir,
er verkið ætluðu að framkvæma, fengið allákveðnar bend-
ingar, annaðhvort beint eða þá í gegnum aðra, að hætta
við slíkt, oft margítrekaðar. Dæmi eru til þess, að þær
hafa verið teknar til greina, og líka hins, að þær hafa
verið að vettugi virtar, en svo hefir oft virzt, sem einatt
hafi það ekki verið Icitið afskiftalaust. Eg efast ekki um
Það, að þið munið kunna einhverjar slíkar sagnir.