Morgunn - 01.06.1935, Page 109
MORGUNN
103
Mér varð að spyrja, hvað hann væri að tala um. Eg
hélt, að einhver misgáningur hefði orðið með meðalið mitt.
Ungi maðurinn lyktaði upp úr glasinu, og fullyrti, að
jþetta væri rétta meðalið. Jafnframt sagði hann mér, að
gamli maðurinn hefði dáið fyrir fjórum árum, og hann
hefði átt þessa lyfjabúð.
Spádómarnir um andlát Dahls bæjarfógeta.
Þess var getið í síðasta hefti Morguns, að Ludvig
Dahl, bæjarfógeti í Noregi, sem var langfremstur sálar-
rannsóknamaður á Norðurlöndum, hefði andast í síðast-
liðnum ágústmánuði. Hann drukknaði. Um andlát hans var
spáð hjá tveimur miðlum.
Þann 3. des. 1933 var haldinn sambandsfundur. Bæj-
arfógetinn, kona hans og ýmsir aðrir voru viðstaddir. Ingi-
björg, dóttir bæjarfógetans, var miðillinn og sat við plan-
séttu. Alt í einu var beðið um, að allir fundarmenn færu
út úr herberginu, að undanteknum skrifara bæjarfógetans,
Apans að nafni. Þegar skrifarinn var orðinn einn eftir hjá
sofandi miðlinum, sagði Ragnar, framliðinn sonur bæjar-
fógetans, sem mikið hefir látið á sér bera við sambandið
hjá systur sinni, að faðir sinn mundi fara af þessum heiini
af slysi áður en tólf mánuðir væru liðnir frá þeim degi;
cn að þetta mætti hann ekki láta neinn vita. Jafnframt lét
Ragnar þess getið, að þetta mundi verða fögnuður fyrir
föður sinn, því að hann hefði ávalt sagt, að menn ættu
helzt að deyja, áður en ellimörkin færu að gera vart við sig.
Skrifaranum félst mjög um þetta, en hann mintist ekki
á það við nokkurn mann. Nákvæma frásögn urn spádóm-
inn skrifaði hann ásamt dagsetningunni.
Fimm mánuðum síðar var skrifarinn aftur einn með
miðlinum. Þá var honum sagt, að til frekari staðfestingar