Morgunn - 01.06.1935, Side 113
M0K6UNN
107
er eitt af ætlunarverkum jarðneskra manna að finna lög-
málin. Ef brotið er gegn lögmálum tilverunnar, annaðhvort
af vanþekkingu eða gáleysi eða þvermóðsku, þá kemur
það niður á oss sem böl í ýmsum myndum. Sambýli mann-
anna hér á jörðunni er svo náið, að ef einn brýtur gegn
lögmálunum, kemur það venjulega niður á fleirum en hon-
um, stundum ótölulegum fjölda manna.
„ , Er þá nokkur forsjón til? Spíritistar hafa
Hvað er þa ,,,,,, . , , , .
um forsjónina? sterka tru a henm sumir bregða þeun um,
eins og áður er vikið að, að þeir hafi hana
bjánalega mikla. Forsjónin er í þeirra augum fólgin í því
framar öllu öðru, að tilverunni eru sett lögmál, sem mönn-
unum eru fyrir beztu á þroskabraut þeirra. En hún nær
líka til einstaklinganna, eftir því sem spiritistar lita á, enda
er þvi stöðugt að þeim haldið af hinni mestu festu í skeyt-
unum frá öðrum heimi. Vitsmunaöfl þar eru þess ávalt al-
búin að hjálpa mönnunum, ef þau geta það.
.... En þessi hjálp er lögmálsbundin, eins og
málsbundin annað 1 tilverunm. Ver þekkjum ekki þau
lögmál, nema að örlitlu leyti, og svo virð-
ist, sem þær vitsmunaverur, sem mennirnir hafa náð nokk-
uru stöðugu sambandi við, séu mjög ófróðar um þau. Eg
hygg> að Það sé eitt af ætlunarverkum mannanna í báð-
um heimunum, að rannsaka þau til hlítar. En svo virðist,
sem það sé eitt af skilyrðunum fyrir því, að unt sé
að láta hjálpina í té, að hennar sé leitað. Það þarf
að vera samstarf beggja megin landamæranna. »Leitið, og
þér munuð finna«, var sagt fyrir 1900 árum. Oss hefir
aldrei verið lofað því, að vér skulum finna neitt dýrmætt,
ef vér leitum þess ekki. Önnur ummæli koma mér til hug-
ar í þessu sambandi, sem virðast benda á það, að það sé
ekki stærilætið og sjálfbyrgingsskapurinn, sem greiði fyrir
hjálpinni — ummælin um það, að hver sem ekki taki við
guðsríki eins og barn, muni aldrei þangað koma. Mér finst
þetta muni vera nokkur bending um það, hvers eðlis þetta
lögmál muni vera. Og í sömu átt virðast mér stefna um-