Morgunn - 01.06.1935, Page 116
110
M 0 R G U N N
Skáldin þrjú.
það komi aftur einu sinni eða tvisvar á þessu ári«. Eftir
efni ætlar hann fyrst og fremst að seilast úr Vestmanna-
eyjum, því að þar telur hann nóg til, ef menn vilja segja
frá. En annars hygst hann að láta menn lesa örlítið brot
af allri þeirri sannanafúlgu, sem er að hrúgast upp — eink-
um í Englandi — fyrir framhaldslífi manna og fá einhverja
nasasjón af sálrænni þekkingu. Blaðið er 16 síður og með
eitthvað 25 fyrirsögnum, svo að menn sjá, að fjölbreytt er
það eftir stærð. Það er líka bæði fróðlegt og skemtilegt.
Hér á landi er, svo sem kunnugt er, mikill fjöldi manna,
sem hafa áhuga á sálarrannsóknamálinu. Þeir ættu að sjá
um það, að blaðið geti haldið áfram, með því að kaupa það.
Eg hlustaði í siðastliðnum febrúarmánuði
á útvarpserindi um skáldin þrjú, Benedikt
Gröndal yngra, Steingrím Thorsteinsson og Matthías Joc-
humsson. Erindið var einkar skemtilegt, eins og við var
að búast, þar sem ræðumaðurinn var Steingrímur Matt-
híasson læknir. En eitt atriði í erindinu fanst mér geta
orkað tvímælis. Því miður hafði eg ekki tök á að skrifa
það atriði samstundis, svo að eg get ekki tilfært það orð-
rétt. En eg vona, að eg fari ekki rangt með aðalefni þess.
Að minsta kosti skildi eg ræðumann svo, sem nú skal
greina. Og eg vona, að hann leiðrétti góðfúslega, ef eg
hefi misskilið hann: Hann ann mjög þessum skáldum öll-
um, og að maklegleikum. Og hann lét uppi þá ósk, að
hann fái að hitta þá, þegar hann er kominn inn í annan
heim, og geti gengið að þeim á einhverjum vísum stað,
en að þeir verði ekki að fara á ýmsa staði hér á jörð-
unni, þar sem miðilsfundir eru haldnir af hinu og öðru
misjöfnu fólki. Eg skildi ræðumann svo, sem hann liti á
það sem einhverja niðurlæging fyrir þessa ágætu menn,
ef þeir lentu í sliku randi hér á jörðunni eftir andlát sitt.
Hvert erindi eiga góðar og þroskaðar ver-
ur úr öðrum heimi hingað til jarðarinnar
á miðilsfundi? Svarið verður vafalaust ein-
róma frá öllum mönnum, sem fengist hafa við sálarrann-
Hvert er
erindið?