Morgunn


Morgunn - 01.06.1941, Side 60

Morgunn - 01.06.1941, Side 60
52 MORGUNN mitt breytast við komu hans, verða að sögunarbyrgi, fullu af söguðum viði, með sögunargryfju og stóru vagnhjóli. Móðir mín komst að raun um, af lýsingu minni, að þetta var frá æskuheimilinu hennar og gamla manninn þekkti hún þá sem föður sinn. Ég var þrettán ára, og hafði þá fengið margháttaða, merkilega reynslu, þegar foreldrar mínar urðu spíritistar og skildu að lokum, að ég var miðill. ... Jafnvel enn, eftir meira en þrjátíu ára miðilsstarf fyrir almenning, á ég örðugt með að svegja hvernig ég sé andana. Daglega finn ég eitthvað nýtt og áður óþekkt í háttum þeirra, ástandi og áhrifum, þegar þeir eru að sanna mér, að þeir séu nálægir með alla elsku sína og allan sinn gamla áhuga fyrir sínum jarðnesku vinum. Ég held, að öll séum vér fædd með sálrænum gáfum, misjafnlega miklum að vísu, og að þjálfun þeirra, eða meðvitundin um þá, ýmist vaxi eða deyji út, eftir því sem umhverfi vort ákveður. Ég er sannfærð um, að þessa sögu hafa margir að segja, ef þeir gefa sér tíma til að líta um öxl og rifja upp fyrir sér minningar sínar frá æskuárunum. Fyrir nokkuru var stödd hjá mér kona, á sambandsfundi, og sagði hún mér sögu af vinkonu sinni, sem hún full- yrti að væri fullkomlega trúverðug og sannorð. Maður hennar dó og hún stóð uppi ekkja með tvær dætur, 4 og 6 ára að aldri. Dag nokkurn meiddi eldri telpan sig mjög illa í fingrinum á járnstól, sem til þess var gerður að leggja hann saman. Hún hágrét af sársaukanum. Móðir hennar þaut burt til að sækja eitthvað til að binda um fing- urinn, en þegar hún kom afur með fingurtrafið, sat barn- ið áhyggjulaust við borðið og var að teikna. Móðirin sagði: „Elskan mín, þú getur ekki teiknað með hendinni þinni svona, leyfðu mér að binda um hana“. „Sjáðu, mamma“, svaraði barnið, „þetta er orðið gott. Pabbi kom út úr skýji og kyssti fingurinn, svo að mér batnaði“. Fund- argestur minn spurði hvort ég tryði þessari sögu og ég
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.