Morgunn - 01.06.1941, Blaðsíða 86
78
MORGUNN
aðstæðurnar orðnar breyttar; spiritisminn var kominn.
fram og farinn að kenna fólki að skilja hluti, sem enginn
hafði skilið áður, að þá áleit hin aldraða frú það skyldu
sína, að láta ekki sögu sína liggja í þagnargildi lengur,
enda myndi hún mæta meiri skilningi en hægt hefði verið
að búast við mörgum áratugum áður. Því skal aðeins bætt
við, að Madame Walter er virðuieg og mikils metin kona
fyrir mannkosti sína.
Dr. Kerner segir að árið 1827 hafi stéttarbróðir sinn
beðið sig að taka að sér mjög merkilegan sjúkling, unga
stúlku, sem komið hafði verið til hans til lækninga.
Dr. Kerner tók þetta að sér og þannig kynntist hann
Mdlle. Olgu Schwarzenberg, dótturM. barónessu í Vín-
arborg.
Tuttugu ára gömul hafði Mdlle. Olga veikst af ákafri
tauga- og magabilun, svo að móðir hennar hafði sent hana
til lækningar til Weinsberg.
Móðirin var glaðvær ekkja, tilfinningalaus og léttúðug
tízkukona og var þá nýgift ákaflega auðugum og ákaflega
gömlum barón, M. að nafni, sem hafði hrifist af töfrum
hinnar heimslunduðu og fögru ekkju.
Við aðgerðir læknanna Kerners og Morans fór Mdlle.
Olga að ná heilsu sinni aftur, en fékk jafnhliða undraverða
skyggnisgáfu og varð frábær ,,somnabulist“.
f dásvefninum mælir hún á tungúm, stm hún annars
kann ekkert orð í, getur leikið á hljóðfæri, sem hún kann
annars ekki og rökræðir af mikilli mælsku um vísindaleg
efni. Auk merkilegra fyrirbrigða í svefngöguástandi getur
hún, í venjulegu ástandi lýst framliðnum mönnum, sem
hún hefir aldrei þekkt, svo nákvæmlega, að viðstaddir
þekkja látna vini sína af þeim lýsingum. En þrátt fyrir
þessi merkilegu fyrirbrigði trúir Mdlle. Olga engan veginn
á tilveru sálarinnar og hefir megnustu fyrirlitning á öllu
tali um annað líf og telur svipina, sem hún sér, fram komna
fyrir hugsanir þeirra, sem viðstaddir eru.
Vegna þess að unga stúlkan hafði hlotið uppeldi sitt hjá