Saga - 1964, Side 163
HÚSAVÍKURVERZLUN I FRlHÖNDLUN
155
sent skip með vörur til Húsavíkur á þessu ári. Nefndin
hélt því meira að segja fram, að ennþá væri von um, að
hann gæti borgað skuldir sínar að lokum, ef hann fengi
lán til að halda verzluninni áfram. Á þessum forsend-
um lagði hún til, að honum yrði veitt 3000 ríkisdala lán,
er greiddist á 6 árum með 4% ársvöxtum, og því til sönn-
unar, að láninu væri varið eins og til var ætlazt og hann
birgði kaupsvæði sitt sómasamlega að nauðsynjum, léti
hann nefndina hafa vottfesta skrá yfir vörur þær, er hann
sendi til íslands. Voru tillögur sölunefndar samþykktar,
en fjármálaráðuneytið tók það fram, að lánið væri veitt
af sérstakri konunglegri náð.
Þessi úrlausn var þó aðeins gálgafrestur, enda hlekktist
skipi Hansteens líka á um haustið, er það var á heimleið
frá Húsavík og kostaði viðgerðin á því allmiklu meira en
tryggingarfélagið greiddi. Afleiðingi varð sú að Hansteen
hafði nær ekkert fé handbært til vörukaupa handa verzl-
un sinni. Og meðan faktor hans á Húsavík hamaðist gegn
verzlun Kyhns á Raufarhöfn og Þórshöfn sumarið 1803,
stóð Hansteen sjálfur uppi ráðþrota í Kaupmannahöfn.
Hann gat nú ekki með neinu móti greitt kornvörur, sem
hann hafði fest kaup á til að senda til Islands, og leitaði
enn sem fyrr á náðir sölunefndar. Hún tregðaðist við lengi
sumars á þeim forsendum, að nú væri alls ekki hægt að
biðja um fleiri lán honum til handa, en þegar sýnt þótti,
að annars yrði ekkert úr för skipsins til fslands, lánaði
nefndin honum á eigin ábyrgð það, sem til þurfti. Þessa
ákvörðun rökstuddi hún svo gagnvart fjármálaráðuneyt-
inu á þá leið, að ekki hefði mátt dragast lengur að koma
skipinu af stað, þar eð svo langt væri liðið á sumarið og
mikill skortur væri á matvörum í Húsavíkurverzlun. En
jafnframt viðurkenndi nefndin þó loksins, að verzlunar-
ferli Hansteens á Húsavík hlyti nú brátt að verða lokið.33
Hansteen var orðinn svo vanur því, að sölunefnd kæmi
honum ávallt til hjálpar, er öll sund virtust lokuð fyrir
honum, að hann mun hafa gert sér vonir um, að hún fyndi