Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.1996, Blaðsíða 11
Orðabókarstörf Konráðs Gíslasonar 9
Konráð segir svo frá í umsókn um styrkþegastöðu til Árnanefndar
16. maí 1835 að frá barnsaldri hafi hann iðkað lestur gamalla pappírs-
handrita með styttingum og böndum, en hann hafi fyrst komist í kynni
við skinnhandrit hjá Scheving á Bessastöðum.* * 3
Eftir að Konráð sigldi til háskólanáms við Hafnarháskóla síðsum-
ars 1831 hélt hann áfram að safna orðum úr handritum fyrir Scheving.
Samhliða laganámi fékkst hann við íslensk fræði eins og fram kemur
í áðurnefndri umsókn. Hún bar ekki tilætlaðan árangur því að Jón Sig-
urðsson fékk styrkþegastöðuna, en Konráð, Skafti T. Stefánsson og
Magnús Eiríksson voru ráðnir til starfa hjá Fornffæðafélaginu vorið
1835. Finnur Magnússon greinir Bjarna Þorsteinssyni frá þessum
ráðningum í bréfi 27. júní s. á. (Landsbókasafn íslands, Lbs. 341 a,
fol.). Ekki er vitað í hverju þessi störf voru fólgin. í bréfi til ísleifs
Einarssonar 17. mars 1836 talar Konráð einungis um það sem hann
hafi „haft að gera fyrir norræna fornfræðafélagið“, hvað það var er
ekki nefnt (Konráð Gíslason 1984:38). Fornfræðafélagið var með
danska orðabók í smíðum og við árið 1839 er þess getið að Konráð
hafi starfað þar við prófarkalestur (Det kgl. danske Vid. Selsk. Skrifter
III 1960:314). Hinn 27. janúar sama ár ítrekaði hann fyrri umsókn til
Árnanefndar, þar sem hann gerði grein fyrir störfum sínum, t. a. m.
hafi honum verið á hendur falið að „besörge Sagaer afskrevne" fyrir
landske Manuskripter, som findes i Bibliotheket. Han har classificeret hvert Ord i dets
forskjellige Betydninger, enhver Betydning er begrundet ved en Citation og enhver
Citation er ledsaget af en Note, som opgiver Bogen og Siden, hvoraf den er taget, og
den Mening den bor have. Jeg har i Hr. Schevings Bolig i Bessestad seet en uhyre
Mængde Materialier, som han har sammenhobet, for at udarbeide sin Ordbog. Da jeg
spurgte ham, om han ikke tænkte paa snart at udgive den, svarede han: „Ak, jo læn-
gere jeg kommer, jo mere seer jeg hvad jeg mangler for at naae det Maal, jeg har sat
mig for at ville naae. Da jeg begyndte dette langvarige Arbeide, troede jeg at kunne
fuldende det i ti Aar. Nu bestemmer jeg ikke mere noget Tidspunkt; jeg arbeider
saalænge jeg lever““ (Sondagen 7/1 1838).
3 Konráð orðaði þetta svo i umsókninni: „Meget tidlig blev jeg vant til, at finde ud
af temmelig gamle og ulæselige Papirs-haandskrifter, der vare overfyldte med alle
Slags Forkortelser, og heri har jeg havt en næsten uafbrudt Övelse. Skindböger deri-
mod blev jeg först bekjendt med hos Dr. Scheving, men har siden gjennemgaaet flere
paa Universitets-Bibliotheket, idet jeg deels har fortsat mine Ordsamlinger for ham,
og deels udskrevet hele Stykker deraf* (Árnasafn í Kaupmannahöfn, Umsóknir til
Árnanefndar um stöðu styrkþega við safnið).