Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1939, Side 139
112
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
það að tillögu, að þingheimur allur þiggi
þetta boð og komi þangað kl. 3.30 e. h.
A. P. Jóhannsson gerði breytingartillögu,
að mjólkurbúið sé beðið að fresta þessu,
og afþakka boðið að svo stöddu. Sveinn
Pálmason studdi. Tóku margir til máls.
Var breyt. tillagan bomin upp og feld.
Tillaga J. J. Bíldfell því næst borin upp
og samþykt.
Þá las séra Philip Pétursson upp
Alit trtnefningamefndar
I fyrra tilnefndi útnefningarnefndin
tvo menn í hvert embætti. En núverandi
nefnd telur það ekki vera sína skyldu að
útnefna fleiri en einn mann í hvert em-
bætti og lætur fundinn sjálfan skera úr,
hverjar breytingar hann vill gera eða
hverja fleiri hann vill útnefna.
Núverandi nefnd félagsins hefir leyst
verk sitt svo vel af hendi, að útnefningar-
nefndinni finst það eigi til neinna hags-
bóta, að neinar breytingar séu gerðar,
þar sem allir núverandi mefndarmenn
hafa góðfúslega lofast til að vera í kjöri
fyrir kosningu til næsta árs.
En eins og öllum er ljóst, er öllum at-
kvæðisbærum meðlimum frjálst að útnefna
eins marga í hvert embætti og þá iystir,
— og láta þingheim skera úr með at-
kvæðagreiðslu.
Utnefningarnefndin leyfir sér þessvegna
að útnefna núverandi nefnd í heild sinni
eins og hún stendur.
Fyrir forseta: Dr. Rögnv. Pétursson.
Fyrir vara-fors.: Dr. Richard Beek
Fyrir ritara: Mr. Gísla Jónsson
Fyrir vara-rit.: Mr. B. E. Johnson
Fyrir gjaldkera: Mr. Ama Eggertsson
Fyrir vara-gjaldk.: Mr. A. P. Jóhannsson
Fyrir fjármálaritara: Mr. Guðmann Levy
Fyrir vara-frjámálar.: Séra Egil Fáfnis
Fyrir skjalavörð: Mr. S. W. Melsted.
P. M. Pétursson
Ragnar Stefánsson
Jakob F. Kristjánsson
Var þá gengið til kosninga.
Tillaga kom frá Fred Swanson, studd af
Sig. Vilhjálmssyni, með þessum lista trt-
nefningamefndar sé útnefningum lokið.
Forseti bað tillögumenn að draga þessa
tillögu til baka, þvi með henni væri verið
að takmarka frjálsræði þingmanna við út-
nefningar. Var þá tillagan dregin til
baka og stungið upp á einum og einum í
senn. Fóru kosningar þannig:
Forseti: Dr. Rögnv. Pétursson
0
Vara-forseti: Dr. Richard Beck
Skrifari: Gísli Jónsson
Vara-skrifari: Séra Valdemar Eylands
Fjármálaritari: Guðmann Levy
Vara-f jármálar.: Séra Philip M. Pétursson
Féhirðir: Arin Eggertsson
Vara-féhirðir: Asm. P. Jóhannsson
Skjalavörður: S. W. Melsted.
öll var nefndin endurkosin, nema vara-
ritari er vann kosningu af fyrverandi
vara-ritara B. E. Johnson, og vara-fjár-
málaritari, er vann við aðra kosningu á
móti þeim séra Egil Fáfnis og séra Sig-
öiafsson.
Að loknum kosningum þakkaði forseti
fráfarandi nefndarmönnum fyrir góða
samvinnu á árinu, og kvaðst vonasí til að
þingið um leið og það byði hina nýju
nefndarmenn velkomna, þakkaði og hin-
um fráfarajndi . Var það gert með al-
mennu lófataki og þvi að allir risu úr
sætum.
Yfirskoðunarmaður til tveggja ára var
kosinn Grettir L. Jóhannsson i einu hljóði.
Var þá veitt fundarhlé til að heimsækja
City Dairy.
Klukkan hálf sex var aftur tekið til
starfa.
Séra Guðm. Arnason og séra Jakob
Jómsson lögðu til að kosin væri 3ja manna
útnefningamefnd til næsta þings. Var
það samþykt og tilefndir Bergþór E-
Johnson, Sveinn Pálmason og séra Rún-
ólfur Marteinsson.