Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Page 2
------------------------------
ÍSLENZK LIST í EIGU ALMENNINGS
Fáir munu vilja kannast við það, að á íslandi sé til fólk ólæst á
bók. Það er nú því miður til, og skammarlegt að kannast við það að því
fer nú aftur fjölgandi. En það er sem betur fer fátt um svo vesælar mann-
verur, þökk sé mönnunum, sem í þúsund ár skrifuðu handa okkur fagrar
bókmenntir og þeim sem gáfu þær almenningi í landinu.
En á íslandi er allur fjöldinn enn illa læs á myndlist af því enginn
hafði tekið sér fyrir hendur að veita honum nægilega greiðan aðgang
að þeim verkum, sem hér voru girnilegust til fróðleiks. En myndlist
verður maður að hafa hjá sér — búa með henni eins og landinu og fólk-
inu, sem síðan ávallt kallar á okkur hvar sem leiðimar liggja, til þess
að veita okkur unað og fegurð og gleði.
★
Jón Stefánsson er einn af höfuðsnillingum íslenzkrar listar fyrr og
síðar. í málverkasafni Helgafells hafa verið valdar nokkrar af fegurstu
myndum málarans: Sumarnótt, Stóðhestar, Dagrenning við Hornbjarg
og Hekla. Er erfitt að gera upp á milli þessara furðuverka í litum og
línum. Þó fegurð myndar hans, Sumarnótt, sé ef til vill augljósari í bili
en hinna, eru þær allar meðal perlanna í íslenzkri list fyrr og síðar.
Sá sem hefur þessar myndir hjá sér er aldrei einn eða andlega snauður.