Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Blaðsíða 38
168
HELGAFELL
UNDIR
SKILNINGS TRÉNU
Ríkið það er ég
Flokksfélagar. Trúnaðarmenn Alþýðuflokksins um
land allt eru beðnir að athuga, að í stað trúnaðar-
bréfs um efnahagsmálin kemur nú Viðreisn, hin
hvíta bók ríkisstjórnarinnar er fjallar um sama efni.
Þeir, sem ekki fá bókina innan skamms eru beðnir að
snúa sér til flokksskrifstofunnar, er mun leitast við
að útvega hana.
Alþbl., ii. 2. ’6o.
Ekki efnilegt á æðri stöðum
Gylfi bilaður í Bremerhaven
Mbl., fyrirsögn, i9. 12. '59
Pétur Thorsteinsson lekur enn
Mbl., fyrirsögn, sl. sumar.
Ættu auðvitað að fást með afslætti
Stjórn félagsins hefur mikinn hug á að koma á
fræðslu um dýravernd í barna- og unglingaskólun-
um. En það sem félagsmenn telja einna brýnasta
þörf fyrir nú, er dýrageymsla og aflífunarstöð með
brennsluofni. Einnig hafa þeir í huga að fá til lands-
ins nýja tegund aflífunartækja, en það eru byssur
með skotum, sem inihalda deyfilyf og deyfa dýrin,
en hvorki særa þau né drepa. Hafa vopn þessi verið
reynd með góðum árangri í Bandaríkjunum, en eru
nokkuð dýr í innkaupi.
Úr Mbl.
Hugsunarleysi
Meira en öld síðar en þetta gerðist, skrifar séra
Matthías Jochumsson Hannesi Hafstein frá Odda
og kemst þá m.a. svo að orði, að sig hafi skort „ýmis
rit til kúltúrfræðilegst undirbúnings. Hér á enginn
bækur . . .“, segir séra Matthías og kveðst ekki af
þeim sökum geta hugsað um tímabil fyrirrennara síns
í Odda, Ara hins fróða.
Mbl.,.forystugr., 29. 11. '59.
Sjaldan lýgur útlitið
Sbeffield, 8. júlí. — Fjórir skuggalegir menn rændu
í dag 50 þús. sterlingspundum úr bankabíl. Réðust
þeir fyrst á bílstjórann og tvo öryggisverði, sem voru
með bílnum, og gengu af tveimur hálfdauðum.
Mbl., 10. 7. '59.
Hætt við komplexum
Eru Klaksdætur þykkvaxnari en föðursystur þeirra.
Búnaðarrit, um kúakyn, 72, 208.
Þjóðleikhúsið svíkst aftan að
vestrænni menningu.
Ur bréfi frá P. K. „Hlustendur ríkisútvarpsins
fengu að heyra dálítið af „hljómlist" Pekingóperunn-
ar. Var þetta einkennilega hjáróma og hjákátleg
„músík“ í mínum eyrum og ótrúlegt að Islendingar
skyldu fylla Þjóðleikhúsið 5 sinnum og eyða (ég veit
ekki hversu miklu) af erlendum gjaldeyri í þessa
„óperu". Þetta er allt ákaflega gamaldags og fram-
andi fyrir vestræn eyru og augu og ég efast um að
það sé nokkur meningarauki. Auk þessa eru Kín-
verjar nú langhræðilegasta ógnun hinum hvíta kyn-
stofni og virðist nú eina vonin, að Rússar gætu ef
til vill brotið hina gulu holskeflu.
Mbl., 24. 11. '59.
(Ur „Hlustað á útvarp").
Fædd í gær
Hin unga ameríska þjóð hefur í mörgu sýnt vaxt-
arþrótt sinn og áræði í því að koma fram á sjónar-
sviðið með nýungar í tækni, vísindum og listum.
Einn fagur vottur merkilegrar grózku í lífi listanna
þar er hinn afburðasnjalli ballett, sem vér erum svo
hamingjusöm að sjá hér á sviði Þjóðleikhússins í
kvöld.
Or ávarpi ÞjóSleiksússtjóra
framan vi3 Leikskrá, nóv. ‘59.
Eða bara tannbursta
Hann hafði komið inn um vesturdyr hússins og
var þar þá fyrir Anton Halldórsson, húsvörður, og
fleira fólk. Anton spurði manninn, að hverju hann
væri að leita, en þá kippti hann upp úr vasa sín-
um annaðhvort skammbyssu eða hníf. . . .
Mbl., 25. 11. '59.
Óhreinskilni á alþjóðavettvangi
Frá landhelgismálaráðstefnunni í Genf. Hare heils-
aði íslendingum virðulega.
Mbl., fyrirsögn 18. 3. 60.
Lágmarkskrafa
Genf, íslenzkur sögustaður.
Mbl., fyrírsögn.
Allar nauðsynlegar upplýsingar
Þjóðleikhúsið. Tekjur: Seldir aðgöngumiðar frá
byrjun til þessa dags: 35.600.000.00. Halli á rekstri
ótrúlega lírill.
T'tminn, 20. 4. '60