Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Síða 39

Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Síða 39
ALDOUS HUXLEY: Grein þessi, sem hér birtist í þýðingu er kapít- uli úr bók Huxleys, Brave New World Revisited (Chatto & Windus, London, 1959). Sú bók fjallar einkum um tvær þær hættur, sem nú steðja að mannkyninu: offjölgun og ofskipulagningu. Hún flytur djarflega áskorun til mannkynsins að var- ast f tíma þá algeru ánauð mannsandans, sem tækniþróun virðist óhjákvæmilega hafa í för með sér, ekki einungis í einræðisríkjum nútímans held- ur einnig í lýðræðisríkjum. I Brave New AVorld, sem út kom 1931, lýsti Huxley í óhugnanlegum myndum heimi framtíðarinnar, eins og hann hugs- aði sér hann, þegar ríkisvaldið hefði tekið í sínar hendur mannrækt samkvæmt vísindalegri tækni. Því miður virðast ýmsir fáránlegir spádómar hans þá vera komnir langt á leið að rætast. Helgafell mun síðar birta fleiri kafla úr hinni nýju bók Huxleys. v-----------------------------------------------------) Ekkert ber oss hraðar áleiðis til þess mar- traðarástands, sem ég nefni Fögru, nýju ver- old, heldur en ofbyggð og sívaxandi fjölgun mannfólksins; í dag er íbúatala heimsins tutt- ugu og átta hundruð milljónir, um næstu aldamót verður hún fimmtíu og fimm liundr- uð milljónir, og allur þorri mannkyns á um einungis tvennt að velja: algert stjórn- leysi eða einræðisskipulag. Mannfjöldinn gengur æ nær forðabúri jarðarinnar, en fleira kemur líka til, sem ber oss áfram í einræðis- áttina. Offjölgunin, blindur, líffræðilegur óvin- ur frelsisins leggst á eitt með tröllauknum öflum, sem einmitt þær tæknivísindalegu framfarir, sem við þykjumst mest af, hafa leyst úr læðingi. Og þykjumst af með fullum rétti, því að þessar framfarir eru ávöxtur snilligáfu, óþrotlegrar elju, rökvísi, ímyndun- arafls og ósíngirni — í stuttu máli gáfna og siðferðilegs afls, sem við dáum skilyrðislaust. En — það er eðlislögmál, að ekkert fæst ókeypis í heimi hér. Þessar furðulegu og dá- samlegu framfarir höfum vér orðið að borga fyrir. Vér erum meira að segja enn að borga af þeim, eins og þvottavélinni, sem keypt var í fyrra, og afborganirnar fara síhækkandi. Margir sagnfræðingar, þjóðfélagsfræðingar og sálfræðingar hafa skrifað langt mál af þungum áhyggjum yfir því verði, sem vestrænir menn hafa goldið fyrir tæknilegar framfarir og halda áfram að gjalda. Til dæmis benda þeir á, að þess er varla að vænta, að lýðræði dafni í þjóðfélögum, þar sém pólitískt og efnahags- legt vald er smám saman að flytjast á hend- ur fárra og á einn stað. En tækniþróunin hefir leitt og leiðir enn til slíkrar sameiningar og slaðsetningar valdsins. Eftir því sem vélar þær, sem notaðar eru við stóriðju verða afkasta- meiri, verða þær líka margbrotnari og dýrari —og að sama skapi erfiðara fyrir þann, sem ekki á yfir miklu fé að ráða, að eignast þær. Ennfremur er það svo, að stóriðja fær ekki þrifizt án víðtækrar dreifingar, en slík dreif- ing er svo miklum erfiðleikum bundin, að hún er einungis á færi hinna stærstu iðju- hölda. í heimi stórframleiðslunnar og sam- svarandi vörudreifingar stendur smáframleið- andinn með sitt takmarkaða rekstrarfé mjög höllum fæti. Hann glatar fé sínu í samkeppn- inni við stórframleiðandann og að lokum sjálf- stæði sínu; hinn gleypir hann. Eftir því sem litlu framleiðendunum fækkar, flyzt efnahags- lega valdið á hendur æ færri mönnum. í ein-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Nýtt Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.