Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Page 46

Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Page 46
176 HELGAFELL höfðu þau af honum: þær hugraunir, sem hann lét ekki á bera, hlutu að vera því dýpri. Og það þurfti ekki annað en Jónas léti á því bera, hve ánægður hann væri með sjálfan sig eða daginn til að foreldrarnir yrðu svo kvíða- fullir að nálgaðist skelfingu. Umhyggja þeirra fyrir drengnum jókst um allan helming og hann fékk allt sem hann girntist. Sú ógæfa, sem talin var hafa hent Jónas, færði honum auk þess trúan og tryggan bróður, þar sem var vinur hans, Rateau. Foreldrar Rateau buðu oft þcssum litla skóla- bróður lians lieim, því þeir aumkuðu hann fyrir það ólán, sem hann hafði orðið fyrir. Þeir töluðu um liann af svo mikilli meðaumk- un að sonur þeirra, sem var hraustur og góð- ur í íþróttum, fékk löngun til að gerast verndari þessa drengs, sem hann dáði fyrir það, hve góðum árangri hann náði í öllu, þrátt fyrir kæruleysi sitt. Aðdáun og lítillæti blönduðust einkarvel saman í þessari vináttu, sem Jónas þáði af örvandi hispursleysi, eins og allt annað. Þegar Jónas hafði lokið námi, án sérstakrar áreynslu, var hann enn svo heppinn að fá starf við bókaútgáfu föður síns og finna þar, eftir óbeinum leiðum, þá köllun sína að verða málari. Faðir Jónasar, sem var helzti bóka- útgefandi á Frakklandi, var þeirrar skoðunar, að bókin ætti meiri framtíð fyrir sér en nokk- urntíma áður, einmitt fyrir þá sök hve menn- ingin var í mikilli afturför. „Sagan sýnir,“ sagði hann, „að því minna sem fólk les, því meira er keypt af bókum.“ Af þessum ástæð- um las hann sjaldan þau handrit, sem hon- um bárust í hendur, tók ákvörðun um að gefa þau út einungis með tilliti til þess hver höfundurinn var eða um hvað hann skrif- aði (kynferðismál var eina viðfangsefnið, sem alltaf var þegið með þökkum, svo það var að lokum orðin sérgrein útgáfunnar), og hann hugsaði um það eitt að gera bækurnar nýstár- lega úr garði og fá þær auglýstar ókeypis. Jónas, sem tók að sér handritalesturinn, fékk þanmg mikinn tíma afgangs, sem hann varð að nota einsog honum bezt líkaði. Þannig fann hann málaralistina. í fyrsta skipti á ævinni varð hann fullur af eldmóði, sem hann hafði ekki áður þekkt, helgaði sig brátt málaralistinni öllum stund- um og náði einnig á þessu sviði prýðilegum árangri, án þess að leggja neitt að sér. Hann virtist ekki hafa áhuga á neinu öðru og það var rétt með hörmungum að hann gæti kvænst, þegar aldurinn bauð honum: hann lifði allur og hrærðist í málaralistinni. Fyr- ir meðbræður sína og venjulega lifnaðar- háttu átti hann einungis góðlátlegt bros, en þóttist ekki þurfa að gefa þeim frekari gaum. Það var ekki fyrr en hann lenti í slysi á bif- hjólinu, sem Rateau ók full glannalega með vin sinn aftan á, að Jónas fór að hugsa um ástina, því þá varð hann að vera með höndina í fatla og leiddist. Það varð því svo um þetta alvarlega slys, að enn þóttist hann sjá, að heillastjarna sín hefði þar verið að verki. Ef það hefði ekki hent hann, liefði hann ekki fengið tima til að virða Lovísu Poulin jafn- mikið fyrir sér og hún verðskuldaði. Rateau var hinsvegar þeirrar skoðunar, að Lovísa verðskuldaði ekki, að henni væri gaumur gefinn. Hann var sjálfur stuttur og samanrekinn og hafði aðeins mætur á stórum konum. „Ég veit ekki hvað þú sérð við þessa títlu,“ sagði hann. Lovísa var raunar lítil, dökk á brún og brá, en vel vaxin og lagleg í andliti. Jónas, sem var stór og stæðileg- ur, hugsaði blíðlega til litlu títlunnar, og því fremur sem hún var ákaflega vinnusöm. Athafnasemin var köllun Lovísu. Slíka köll- un þótti Jónasi mikið varið í, því hann var lítt vinnugefinn. Lovísa sökkti sér fyrst niður í bókmenntir, meðan hún hélt að Jónas hefði áhuga á bókaútgáfunni. Hún las allt, sem hún náði í, skipulagslaust, og eftir nokkrar vikur gat hún talað um hvað sem var. Jónas dáðist að henni og komst að þeirri niðurstöðu, að hann þyrfti ekki framar að lesa neitt, því Lovísa fræddi hann nægilega og sagði honum frá öllu því markverðasta, sem gerðist í nú- tímabókmenntum. „Það er ekki hægt að segja,“ fullyrti Lovísa, „að þessi eða hinn sé vondur eða ljótur, heldur að hann láti sem hann sé vondur eða ljótur.“ Skilsmunur þessi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.