Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Page 68

Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Page 68
198 HELGAFELL gagnrýninni á því umhverfi, sem Blixen lætur sögur sínar gerast í. Þó ber ekki nauðsyn til að fara svo langt, því hafna má þessari gagn- rýni af öðrum ástæðum. í öllum skáldskap sínum segir hún frá fólki, sem hún hefur yndi af að lýsa af mikilli og hvassri gagnrýni. Hún fellur ekki í stafi af barnalegri aðdáun á því. Hún dáir aðeins nokkrar af hinum gömlu hugsjónum, sem það var fulltrúi fyrir, þar sem henni aftur á móti finnast aðrar hugsjón- ir þess fela í sér sjálfsmorð og dauða, eins og skýrast kemur fram í „Karyatiderne". Því ber þó ekki að neita, að síðasta bók Karenar Blixen, er ekki gallalaus með öllu. Blixen verður ekki talin frumlegur stíl- isti. Frásagnarháttur hennar minnir oft og tíðum á tímabil, sem löngu voru runnin fyrir daga J. P. Jacobsens og Hermans Bang. Hún hefur ekkert lært af hinni impressjónísku frá- sagnarlist Bang né málsnilld Jacobsens. Það kemur alltof oft fyrir, að hún lætur nægja að lýsa með hversdagslegum orðum eins og yndislegur, dásamlegur, dýrlegur, unaðslegur, hrífandi og þannig endalaust. Lýsingarorð, sem hún notar eins og óhófsmaður áfengi. Þess vegna eru sögurnar, hvað málfar suertir ekki sérkennandi á neinn hátt, lítið eitt væmnar og bragðdaufar. Frúna skortir stór- brotna málsnilld Jóhannesar V. Jensens og Thöger Larsens. Og því verður ekki neitað, að umhverfi það er hún lýsir, dregur þennan galla mjög skýrt fram. Ennfremur eru per- sónulýsingarnar oft ótrúlega yfirborðslegar. Skáldkonan lætur undir höfuð leggjast að skýrgreina djúptækar geðshræringar, hún vík- ur sér undan því með óskiljanlegum yfir- borðshætti. Eitt átakanlegt dæmi af mörgum skal hér nefnt. Það er úr sögunni „Ib og Adelaide“. Adel- aide hefur yfirgefið Ib og þá segir: „Meðan Ib staldraði við, lék stór hljóm- sveit á götu í Kaupmannahöfn voldugt stef, Liebesflucht Adelaide.“ Þetta lag á að koma í staðinn fyrir allar frekari lýsingar á hugarstríði Adelaide. Á hinn bóginn reynir skáldkonan að bæta úr þessum annmörkum með frásagnarsnilld, sem alltaf tekst að hrífa lesandann allt til söguloka. Styrkur hennar er einkum fólginn í hæfileikanum að gefa í skyn, svo að lesand- inn er knúinn til að hugsa sjálfur. í dönskum bókmenntum táknar skáldskap- ur hennar endurvakningu upphaflegrar og óháðrar frásagnarlistar, sem raunsæisstefnan hafði nær útrýmt. Lífsskoðun hennar og list- sýn er tvímælalaust runnin frá bókmennta- stefnu síðasta tugs 19. aldarinnar. Þegar skáld eftirstríðsáranna í Danmörku tóku ástfóstri við þetta Ijóðræna tímabil, var ekki að furða, að Karen Blixen ásamt Martin A. Hansen yrði fyrirmynd þessara skálda, þótt þau væru alltof ógagnrýnin og gleyptu við öllu, sem luin lét frá sér fara. 1 sögunni „Vejene omkring Pisa“ rœða danski greifinn og unga stúlkan m. a. um skyldur gestsins og húsfreyjunnar. Unga stúlkan segir þar, að húsfreyjan eigi alltaf eina ósk sér til handa: Hún vill láta þakka sér fyrir. Skal nú ljúka þessu spjalli með því að minna á, að um langt skeið var Karen Blixen líkt innan brjósts og frönsku eldabusk- unni frábæru í „Babettes Gœstebud“, sem enginn skildi, loks þegar hún fékk notið sín. Ilugsum okkur þá Karen Blixen í hlutverki Babettes og að þessa stuttu kvnningu á skáld- skap hennar megi skoða sem þakklætisvott fyrir það, sem hún hefur veitt lesendum sín- um víða um heim á síðustu 25 árum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.